28.03.2011 20:10Aukning aflaheimilda er hraðvirkasta hagvaxtartækið sem landsmenn hafa í höndunumStefán Guðmundsson © mynd þorgeir Baldursson 2010 Hérna heldur Stefán Guðmundsson skipstjóri á Aron ÞH 105 á vænum þorski Ca 25 kiló Sigmundur Ernir Rúnarsson þingmaður Samfylkingarinnar segir að líklega sé meirihluti fyrir því á Alþingi að bæta við aflaheimildum í nokkrum helstu botnfisktegundunum, einkanlega þó þorski. Hann sé enda farinn að vaxa úr sér svo horfir til vandræða í fiskverkun víða um land.
Þetta kemur fram pistli Sigmundar á vefsíðu sinni og þar segir ennfremur: "Ég hef talað fyrir því að auka aflaheimildir við þær aðstæður sem nú ríkja í hafi og efnahag. Sjómenn og fiskverkendur, sem ég er í ágætu samtali við, eru einhuga um að aldrei hafi fiskgengd verið jafn mikil það sem af er þessari öld - og pundið aldrei verið þyngra. Við þessar aðstæður er ekki ónýtt að spyta sosum eins og 20 milljörðum inn í hagkerfið með yfir 20 þúsund tonna aukningu heimilda - og binda þau jafnvel við landvinnslu sem skilaði yfir 1000 störfum á stundinni. Aukning aflaheimilda er hraðvirkasta hagvaxtartækið sem landsmenn hafa í höndunum. Og þörfin er skýr; aukinn hagvöxtur eða aukinn niðurskurður. Við eigum að taka tillit til reynslu og vísinda í auðlindamálum okkar. 25 þúsund tonna aukning aflaheimilda, jafnvel næstu 3 árin, eru innan áhættumarka - og viðheldur vexti stofnsins. Ég hyggst spyrja hæstvirtan sjávarútvegsráðherra á Alþingi í dag hvað tefji för í þessu efni," segir Sigmundur. Skrifað af Þorgeir |
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning: HörgárbyggðUm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 1527 Gestir í dag: 51 Flettingar í gær: 1455 Gestir í gær: 74 Samtals flettingar: 992948 Samtals gestir: 48558 Tölur uppfærðar: 21.11.2024 10:48:29 |
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is