02.06.2011 18:10Frá Miðum til MarkaðaVörður ÞH © mynd Kristin Benidiktsson 2011 úr Vinnslunni © mynd Kristinn Benidiktsson 2011 Á Spönskum markaði © mynd Kristinn Benidiktsson 2011 Saltfisk pökkun © Mynd Kristnn Benidiktsson 2011 Stál og Hnifur © mynd Kristinn Benidiktsson 2011 Snurvoðarpoki © mynd kristinn Ben Flugfisk Pakkað © mynd Kristinn Ben Frá miðum til markaða, ljósmyndasýning Kristins Benediktssonar á Bryggjunni í Grindavík Kristinn Benediktsson, ljósmyndari, hefur opnað ljósmyndasýningu sem hann nefnir Frá miðum til markaða á veitingastaðnum, Bryggjan í Grindavík. Sýning er liður í hátíðahöldum sjómanna í Grindavík en mun síðan standa uppi á Bryggjunni í sumar eins og þurfa þykir. Myndirnar hefur Kristinn tekið undanfarin ár úti á sjó, um borð í skipum og bátum frá Grindavík auk þess að hafa myndað fiskvinnslufólk í Grindavík og á fiskmarkaðnum í Barcelónaborg þar sem verið er að selja saltfisk frá Grindavík. Myndir eiga að sýna þverskurð af sjómennsku, vinnslu á saltfiski og öðrum gæðaafurðum sem Grindvíkingar framleiða á sjó og landi auk þess að gefa innsýn í hvert afurðirnar fara á erlenda markaði og er þar fyrst kynntur fiskmarkaðurinn við Römbluna í Barcelóna. Sýningin verður farandsýning út á land auk þess sem hún verður sett upp erlendis og þá einkum á Spáni, Portúgal, Grikklandi og Ítalíu sem eru okkar helstu markaðslönd fyrir saltfiskafurðir auk fleiri landa. Kristinn Benediktsson nam ljósmyndun í lok sjöunda áratugar síðustu aldar hjá Ljósmyndastofu Þóris og vann hjá Morgunblaðinu með náminu auk nokkurra ára á eftir eða samtals 10 ár. Árið 1976 fór Kristinn að taka myndir markvisst úti á sjó fyrir tímaritið Sjávarfréttir sem þá var gefið út og var forveri Fiskifrétta. Um árabil bjó Kristinn í Grindavík þar sem hann starfaði við verkstjórn í saltfiskverkun auk þess sem hann stundaði sjómennsku í nokkur ár. Hann nýtur góðs af þeirri reynslu í dag þegar hann vinnur í blaðamennsku og ljósmyndun í sjávarútveginum, undirstöðuatvinnuvegi þjóðarinnar. Sýningin er styrkt af Menningarráði Suðurnesja auk fjölda annarra aðila. Skrifað af Þorgeir |
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning: HörgárbyggðUm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 1527 Gestir í dag: 51 Flettingar í gær: 1455 Gestir í gær: 74 Samtals flettingar: 992948 Samtals gestir: 48558 Tölur uppfærðar: 21.11.2024 10:48:29 |
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is