1395-Kaldbakur EA 1 © mynd þorgeir Baldursson
2154 Árbakur EA 5 © Mynd þorgeir Baldursson
Sigtryggur Gislasson skipst Kaldbaks EA 1 © Mynd þorgeir Bald
Útgerðarfélag Akureyringa hefur nú tekið við þeim tveim togurum sem fylgdu með í kaupum Samherja hf. á eignum Brims á Akureyri. Skipið Sólbakur EA 1 fær aftur sitt gamla nafn Kaldbakur EA 1. Hinn ísfisktogarinn Mars RE 305 fær einnig sitt fyrra nafn Árbakur EA 5.
Skipstjóri á Kaldbak EA 1 verður Sigtryggur Gíslason en hann hefur verið skipstjóri á skipum Samherja um langt árabil, nú síðast á Björgvin EA 311. Kaldbakur fer nú í slipp hjá Slippnum á Akureyri og gert er ráð fyrir að skipið haldi til veiða í byrjun september.
Ekki er fyrirhugað að Árbakur fari til veiða á næstunni.