15.12.2011 15:32Isfisktogari keyrir á Steikingarfeiti Björgúlfur EA 312 ©Mynd Þorgeir Baldursson 2011 Ávinningurinn er meðal annars sá að það þarf ekki að kaupa eldsneyti erlendis frá. Það sparar erlendan gjaldeyri. Þá dregur notkun lífdíselsins úr losun gróðurhúsalofttegunda um 80% miðað við notkun venjulegrar díselolíu," segir Kristinn F. Sigurharðarson, framkvæmdastjóri Orkeyjar, um þau tímamót að Björgúlfur EA-312 notar orðið íslenska lífdíselolíu. Verksmiðja Orkeyjar er á Akureyri og segir Kristinn vel hægt að auka framleiðsluna verulega. "Orkey framleiðir 300 tonn á ári miðað við þá keyrslu sem við erum með í dag. Við getum aukið framleiðsluna með tiltölulega litlum tilkostnaði upp í 2.500 tonn. Íslenski flotinn notar 300.000 tonn. Þetta er því lítið brot af heildinni. En þetta gefur okkur möguleika á því að huga að miklu fleiri hráefnismöguleikum sem eru fyrir hendi og er ekki verið að nýta í dag. Nú notum við dýrafitu og steikingarfitu í framleiðsluna. Það eru miklu fleiri möguleikar sem við gætum verið að nýta. Það er von okkar að þetta ryðji brautina fyrir frekari vinnslu." Einsdæmi í heiminum Fram kemur í tilkynningu frá fyrirtækinu að það sé "einsdæmi í heiminum að úrgangi sé breitt í orku sem síðan er notuð á fiskiskip". Hluthafar Orkeyjar eru sextán talsins. Þeir eru Aura Mare, N1, Samherji, Víkey, Rafeyri, Tækifæri, Arngrímur Jóhannsson, Efnamóttakan, Hafnarsamlag Norðurlands, Mannvit, Norðurorka, Brim, HB Grandi, Höldur, Ágúst Torfi Hauksson og LÍÚ. Skrifað af Þorgeir |
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning: HörgárbyggðUm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 3025 Gestir í dag: 60 Flettingar í gær: 1455 Gestir í gær: 74 Samtals flettingar: 994446 Samtals gestir: 48567 Tölur uppfærðar: 21.11.2024 13:46:41 |
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is