Lundey NS 14 © mynd þorgeir Baldursson 2012
Gefur á Lundey á Breiðafirði á dögunum © þorgeir
Með fullfermi á leið til Löndunnar á Akranesi © mynd þorgeir
Kaldafýla á móti © mynd þorgeir
Ágjöf á landleið © mynd þorgeir
Sigling © myndir þorgeir Baldursson 2012
Myndasyrpa þessi af loðnuskipinu Lundey NS 14 var tekin i Breiðafirði á yfirstandi loðnuvertið
og var þá skipið á landleið til Akranes með fullfermi alls um 1500 tonn
Góð loðnuvertíð virðist nú vera á enda runnin. Flest loðnuskipin eru hætt veiðum. Ásgrímur Halldórsson SF frá Hornafirði er þessa stundina að fikra sig austur með suðurströndinni á heimleið. Að sögn Ásgeirs Gunnarssonar útgerðarstjóra Skinneyjar-Þinganess er hann með aðeins 100 tonn í lest eftir þrjá daga.
,,Þetta virðist vera búið nema einhver loðna komi vestan að. Það litla sem fengist hefur að undanförnu er kolsvartur og loðinn karl. Annars hefur vertíðin verið ágæt þótt veðráttan hafi verið erfið og innsiglingin hingað til Hornafjarðar verið til trafala. Hún lokaðist í viku á hrognatímabilinu og á meðan lönduðum við í Vestmannaeyjum og á Hornafirði," sagði Ásgeir, en Skinney-Þinganes á 1.800 tonn eftir af loðnukvóta sínum.
Samkvæmt aflastöðulista Fiskistofu eru 13.000 tonn óveidd af heildarloðnukvótanum.