
Norska linuskipið Ny Argo © mynd Magnar Lyngstad
skipið mun nú vera skammt fyrir austan eyjar og mun verða þar i kirngum miðnættið
Norskt línuveiðiskip staðið að meintum ólöglegum veiðum
09. apr. 2012
Mánudagur 9. apríl 2012
Upp úr kl. 11:00 í morgun stóð áhöfn þyrlunnar TF-GNA norskt línuveiðiskip að meintum ólöglegum veiðum í reglugerðarhólfi í Skeiðarárdýpi. Varðstjórar stjórnstöðvar Landhelgisgæslunnar höfðu komið auga á skipið um kl. 08:30 í morgun í ferilvöktunarkerfum, þar sem það var statt inni í hinu lokaða hólfi og virtist vera að leggja línu. TF-GNA sem var við að fara í eftirlitsflug var því beint á svæðið og hafði áhöfn hennar samband við skipið og fékk uppgefnar staðsetningar sem samræmdust athugunum varðstjóranna. Skipverjum skipsins hefur verið gert að ljúka við að draga línuna og halda síðan til Vestmannaeyja þar sem skýrslutaka mun fara fram.Af vef lhg.is