25.07.2012 20:38Viðtal við Garðar Valberg á valbergi Ve 10 Garðar Valberg Sveinsson Skipstjóri á Valbergi Ve 10 Valberg Ve 10 við bryggju á Akureyri Búnaðurinn sem að er notaður til að mæla dýpið Ánægðir með þjónustuna á Akureyri Fjögur
rannsóknar- og þjónustuskip komu til Akureyrar í síðustu viku og lágu þrjú
þeirra við bryggju í Krossanesi, m.a. rannsóknarskipið Nordic Explorer en
þjónuustuskipið Valberg VE 10, sem er íslenskt, var í Fiskihöfninni. Skipin eru
við olíurannsóknir á svæðinu suður af Jan Mayen og inn á Drekasvæðið í íslensku
lögsögunni. Öll þurfa þessi skip mikla þjónustu og eru vonir bundnar við að
skipakomum sem þessum fari fjölgandi á á Akureyri á næstu mánuðum. Garðar Valberg Sveinsson er skipstjóri á Valberg, segir að almenn ánægja hafi verið með að
koma til Akureyrar, enda sé hér allt til alls. "Það var einmitt þess vegna sem
ákveðið var að koma hingað í tengslum við þetta verkefni og ég á von á að við
munum gera meira af því í framtíðinni. Ég hitti yfirmennina á hinum skipunum og
þeir hrósuðu þeirri þjónustu sem þeir hafa fengið hér. Framhaldið hjá okkur
ræðst þó af þessum niðurstöðum núna. Gögnin eru send til Noregs og unnið úr
þeim þar en sú vinna tekur einhverja mánuði. Við erum í svokallaðri 2D
rannsókn, sem er frekar gróf en ef menn finna eitthvað sem þeir telja ástæðu
til að skoða frekar, verður komið á staðinn með svokallað 3D skip. Það tekur þá
yfir ákveðið svæði og fer þar yfir hvern fersentimeter. Þetta getur t.d. verið
svæði sem er 20x20 mílur og er þá fínkempt," segir Garðar. Skipin
eru við rannsóknir í fimm vikur í senn en þá er skipt um áhöfn. Skipin eru öll
komin aftur á rannsóknarsvæðið suður af Jan Mayen en Garðar gerir ráð fyrir því
að þau komi til Akureyrar á ný, svo framarlega að verkinu verði ekki lokið.
"Það eru allir mjög spenntir fyrir þessum rannsóknum," sagði Garðar. Skrifað af Þorgeir |
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning: HörgárbyggðUm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 2696 Gestir í dag: 15 Flettingar í gær: 4063 Gestir í gær: 33 Samtals flettingar: 1121822 Samtals gestir: 52256 Tölur uppfærðar: 18.1.2025 06:10:23 |
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is