Nóvember mánuður var ansi góður togveiðimánuður og reyndar er búið að vera mjög góð ísfiskstogaraveiði í allt haust. Eins og kemur fram á nýjasta botnvörpulistanum þá eru það 5 togarar sem ná yfir 600 tonnin sem er ansi góður árangur og einn af þeim togurum er 4 mílna togarinn Sóley Sigurjóns GK sem Nesfiskur í Garði gerir út. Þetta kemur fram á fréttavefnum www.aflafrettir.is
Togarinn var að mestu að veiðum við Vestfirðina og landaði þá t.d á Ísafirði og á Siglufirði. Öllum aflanum var þá ekið suður til vinnslu. Má segja að togarinn hafi verið í mokveiði allan nóvember og t.d. kom mest með 129 tonn eftir einungis tæpa 3 daga á veiðum sem gerir um 43 tonn á dag
Alls landaði togarinn 611 tonnum í 6 löndunum og var stærsti túrinn 133 tonn sem fengust á 5 dögum eða 26 tonn á dag.
Er þetta mesti mánaðarafli sem togarinn hefur fengið frá því hann hóf veiðar undir nafninu Sóley Sigurjóns GK.
Þess má geta að annar aflahæsti 4 mílna togarinn var hinn Nesfiskstogarinn Berglín GK sem var með 479 tonn í 5 löndunum og þar á eftir kom svo aflaskipið Þórunn Sveinsdóttir VE sem var „aðeins“ með 454 tonn í 5 löndunum.
Þess má geta að af þessum 611 tonna afla þá var þorskur 503 tonn eða 82% aflans. Er þessi þorskveisla lýsandi dæmi um aflann hjá bátum og skipum við norðan og vestanvert landið.
Á meðfylgjandi mynd er Sóley Sigurjóns á veiðum fyrir norðan land mynd Þorgeir Baldursson 2013
Heimild www.kvotinn.is
|