Birtingur Nk og Börkur Nk við Bryggju á Neskaupstað
Síldveiðiskipin Birtingur NK og Börkur NK komu til Neskaupstaðar í morgun og er þar með veiðum þeirra lokið fyrir jól. Birtingur var með 320 tonna afla og Börkur með rúmlega 400 tonn en allur aflinn fer til manneldisvinnslu í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar. Skipin hafa að undanförnu verið að veiðum í Breiðamerkurdýpi og hefur veiðin yfirleitt verið dræm. Þá hefur síldin sem þar hefur veiðst verið mun smærri en sú síld sem fengist hefur í Breiðafirði.
Frá þessu er sagt á heimasiðu Sildarvinnslunnar www.svn.is
|