04.06.2014 20:47

HG lætur smiða Isfisktogara

           Tölvuteikning   Af vef Bæjarins Besta © 2014

Hraðfrystihúsið-Gunnvör í Hnífsdal (HG) hefur ákveðið að ráðast í nýsmíði á ísfisktogara sem byggður verður í Kína eftir íslenskri hönnun. Skipið mun kosta um 1,5 milljarð króna fullbúið og er gert ráð fyrir því að það verði afhent eftir 18 mánuði. Nýsmíðin var kynnt á fundi í Edinborgarhúsinu á Ísafirði í dag, en um talsverð tímamót er að ræða það sem þetta er stærsta einstaka fjárfesting sem gerð hefur verið í sjávarútvegi á Vestfjörðum um langa hríð. Síðasta stóra nýsmíði í vestfirskum sjávarútvegi var fyrir 20 árum síðan þegar Guðbjörg ÍS kom til heimahafnar á Ísafirði haustið 1994. Þörf hefur verið á endurnýjun á hluta skipa HG sem komin eru til ára sinna og hefur undirbúningur þess staðið í nokkurn tíma. Eftir að hafa velt upp möguleikanum á að kaupa notað skip eða að endurbyggja Pál Pálsson, gekk HG til samstarfs við við Vinnslustöðina í Vestmannaeyjum (VSV) árið 2010 um þarfagreiningu varðandi hönnun og smíði á nýjum togurum. 

Við hönnunina, sem var í höndum Verkfræðistofunnar Skipasýnar og starfsmanna HG og VSV, var lögð megináhersla á eftirfarandi: 

Í fyrsta lagi að aðstaða til vinnslu afla væri sem best til að tryggja gæði hráefnisins og nýtingu alls afla, þ.m.t. aukahráefnis s.s. lifrar og slógs.Í annan stað var lögð sérstök áhersla á orkusparnað við hönnun skrokka skipanna og við val á framdrifsbúnaði, auk þess sem togvindur verða rafdrifnar.Sjálfvirkni tækjabúnaðar á millidekki, í lest og við löndun. Að allur aðbúnaður áhafnar verði í samræmi við nútímakröfur. 

Niðurstaðan varð sú að skipin verða 50,7 metrar að lengd og 12,8 metra breið. Vegna nýstárlegrar hönnunar á skrokkum skipanna og mun stærri skrúfu heldur en nú tíðkast á þessari stærð skipa, er áætlað að þau hafi um 60% meiri veiðigetu en þau skip sem þau leysa af hólmi án þess að eyða meiri olíu. Þá verða skipin búin þremur rafdrifnum togvindum og geta því dregið tvö troll samtímis. 

HG og VSV leituðu tilboða í smíði á skipunum, frá skipasmíðastöðvum í Danmörku, Noregi, Póllandi, Tyrklandi og Kína og reyndist tilboð frá Huanghai skipasmíðastöðinni í Rongcheng í Kína hagstæðast og tókust samningar við þá stöð. 

Í fréttatilkynningu segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri HG, að síðustu fimmtán ár hafa ekki leyft fjárfestingar félagsins í nýjum skipum. Einar Valur kveður fyrirtækið hafa verið að byggja sig upp með kaupum á veiðiheimildum og til lítils sé að ráðast í fjárfestingar í skipum séu nægar veiðiheimildir ekki til staðar. 

„Þörfin á endurnýjun ísfiskskipanna helgast af nauðsyn þess að geta þjónað landvinnslu fyrirtækisins sem best með tilliti til góðs hráefnis og rekstraröryggis, enda krefst markaðurinn afurða af góðum gæðum á réttum tíma,“ er haft eftir Einari Val. „Einnig er lykilatriði að ná fram orkusparnaði samfara auknum gæðum hráefnis til að þjóna sífellt auknum kröfum markaðarins, þetta er jú allt ein keðja; veiðar, vinnsla og markaðssetning. Síðast en ekki síst þarf fyrirtækið að standast samkeppni við erlenda keppinauta úti á markaðnum þar sem samkeppnin fer sífellt vaxandi. Einnig er vert að benda á að helstu keppinautarnir erlendis njóta ríkisstyrkja á meðan íslenskur sjávarútvegur greiðir fyrir afnot af auðlindinni til ríkisins. Ég hef sagt að eðlilegt sé að greiða fyrir aðganginn að auðlindinni þó að mér finnist gjaldið alltof hátt og lítið af því skili sér til baka út á landsbyggðina þar sem starfsemin á sér stað,“ segir í fréttatilkynningu frá HG. 

Einar tekur einnig fram að alltaf sé viss áhætta við svo stóra fjárfestingu. „Við erum vel meðvituð um áhættuna samfara breytingum á afkastagetu fiskistofna, en vitum minna um aðra áhættuþætti, þar á ég við endurskoðun og breytingu á stjórnkerfi fiskveiða og mikla hækkun veiðigjalda. Þetta er mikil fjárfesting til langs tíma og því mikilvægt við slíka ákvörðunartöku að hafa fyrirsjáanleika, geta treyst því að rekstrargrundvelli verði ekki kippt undan rekstrinum á augabragði,“ segir Einar Valur Kristjánsson. 

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 902
Gestir í dag: 24
Flettingar í gær: 3737
Gestir í gær: 72
Samtals flettingar: 1060318
Samtals gestir: 50927
Tölur uppfærðar: 21.12.2024 13:15:19
www.mbl.is