| 31.05.2016 11:57Arctic Circle jómfrúarferð i GrimseyArctic Circle, skip í eigu Ambassador hvalaskoðunar á Akureyri, fór í sína fyrstu ferð til Grímseyjar um helgina. Skipið er afar hraðskreitt og tekur siglingin frá Akureyri til Grímseyjar aðeins rúma tvo tíma. Er skemmst frá því að segja að ferðin tókst betur en nokkur hafði þorað að vona og voru farþegarnir, Karlakór Eyjafjarðar og gestir þeirra, bókstaflega í sjöunda himni þegar heim var komið. Kórinn hélt tónleika í félagsheimilinu Múla í Grímsey fyrir heimamenn og var gerður góður rómur að söng og karlmennsku kórsins. Hafnar verða reglulegar siglingar til Grímseyjar 1. júní. Siglt verður fjórum sinnum í viku. Framan af sumri verður siglt á kvöldin, lagt verður af stað frá Akureyri klukkan 18 og komið aftur upp úr miðnætti. Nánari upplýsingar má finna á vefnum Ambassador.is Myndir Þorgeir Baldursson Teksti Skúli Gautasson 
 
 
 Skrifað af Þorgeir | Eldra efni 
 Um mig Nafn:Þorgeir Baldursson Farsími:8620479 Tölvupóstfang:thorgeirbald62@gmail.com Heimilisfang:Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð Staðsetning:Hörgárbyggð Um:Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi Tenglar
 Flettingar í dag: 1687 Gestir í dag: 4 Flettingar í gær: 12812 Gestir í gær: 70 Samtals flettingar: 2246974 Samtals gestir: 68984 Tölur uppfærðar: 31.10.2025 01:57:48 | ||||||||||||||||||||||||||||
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is