Huginn Ve 55 Mynd þorgeir Baldursson 2014
Huginn VE heldur til Póllands á morgun,
þar sem skipið mun gangast undir endurbætur í skipasmíðastöðinni Alkor í Gdansk.
Þetta segir Páll Guðmundsson, framkvæmdastjóri Hugins, í samtali við fréttamiðilinn Eyjar.net.
Segir hann að skipið verði lengt um 7,2 metra og lestarrýmið stækkað um 600 rúmmetra,
auk þess sem fyrirhugað sé að sandblása allt skipið. Eru verklok áætluð um miðjan ágúst.
Huginn VE 55 var smíðaður árið 2001 í Chile,
en um er að ræða vinnslu- og fjölveiðiskip sem fiskar bæði í nót og flottroll.
|