Hurðarlaust Helvitis rok Mynd þorgeir Baldursson 2018
Steinþór Hálfdanarson, stýrimaður á togaranum Gullveri NS, segir í samtali við vef Síldarvinnslunnar að veðrið í febrúar hafi verið leiðinlegt.
„Það hefur verið mikill lægðagangur og sífelldar umhleypingar í febrúar en janúar var hins vegar býsna góður hvað veður varðar hérna fyrir austan.
Núna er til dæmis hurðalaust helvítis rok. Við erum austur úr Gerpi og erum að dóla upp undir landið.
Ætlunin er að fara norður eftir, það mun hægja fyrr fyrir norðan.
Við eigum að landa á fimmtudag og erum komnir með rúmlega 40 tonn,“ segir Steinþór við vefsíðuna.
Skipstjórinn Rúnar L. Gunnarsson segir að fiskirí hafi verið þokkalegt frá áramótum.
Þorskur hefur fengist á Digranesflakinu og Langanesgrunni.
Vel gekk að fiska í janúar en þá náðust um 500 tonn í sjö túrum. Veðrið hefur aftur á móti sett strik í reikninginn í febrúar.
|