2882 Vikingur AK 100 mynd þorgeir Baldursson 2019
Samkvæmt áætlun er stefnt að því að Víkingur AK 100 haldi til veiða á mánudag, segir Ingimundur Ingimundarson, útgerðarstjóri uppsjáfarskipa hjá Brim, í samtali við 200 mílur „Þetta er vonandi að ganga saman.“
Víkingur, togari Brims, hefur verið í slippnum á Akureyri í um tvær vikur eftir að sprunga uppgötvaðist milli vélar og gírs.
Ingimundur telur að fjarvera Víkings frá veiðum mun ekki hafa neikvæð áhrif á afköst félagsins á haustvertíðinni. „Venus er búin að vera að á meðan og við teljum okkur ná okkar kvóta þegar Víkingur kemur inn í næstu viku. Venus er úti núna, ég held þetta sé alveg að koma hjá okkur. Hljótum að fá einhverja tíu fimmtán daga í síld og þá erum við búnir að græja þetta,“ útskýrir hann.
mbl.is
myndir Þorgeir Baldursson
|