1434 Þorleifur EA 88 mynd þorgeir Baldursson 2012
Rammi ehf. í Fjallabyggð hefur keypt allt hlutafé sjávarútvegsfyrirtækisins Sigurbjarnar ehf. í Grímsey.
Aflaheimildir félagsins eru um 1.000 þorskígildistonn og eru kaupsamningar gerðir með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins. Kaupverð er trúnaðarmál.
Sigurbjörn ehf. hefur gert út þrjá báta og rekur litla fiskvinnslu í eynni, en Rammi hyggst ekki verka þar fisk.
Ársverk starfsfólks Sigurbjörns ehf. til lands og sjávar hafa verið alls níu.
Rammi hf. gerir út fjóra togara og rekur rækjuverksmiðju í Fjallabyggð og frystihús í Þorlákshöfn.
Hjá Ramma hf. starfa um 250 manns. Aflaheimildir Sigurbjörns ehf. falla vel að rekstri Ramma hf.
segir i frettatilkynningu Frá Ramma EHF
|
Fiskverkun Sigurbjörns i Grimsey mynd þorgeir Baldursson |
|
Saltfiskurinn Pæklaður mynd þorgeir Baldursson |
|