|  | 
		
			|   
				
					
						|  |  
						|         Sverrir og Guddi Á  Aþenu Þh 505 Gera klárt mynd þorgeir Baldursson 
							
								
									|  |  
									| 2436 Aþena ÞH 505 heldur i Róður  mynd þorgeir Baldursson |  |  | 
	
 
 
Árlegur upplýsingafundur um grásleppumál var haldinn í Kaupmannahöfn 7. febrúar sl.  Mjög góð þátttaka var á fundinum og margt fróðlegt sem þar kom fram.
 
 
Heildarveiði allra þjóða á árinu 2019 umreiknað í fjölda tunna af söltuðum hrognum losaði 21 þúsund.  Almennt gengu veiðarnar vel hér við land, Grænlandi og Noregi.  Þó lítilsháttar aukning hafi verið hjá Nýfundnalendingum á veiðin þar langt í land með að skila því magni sem þar var veitt hér á árum áður.  
 
Alls jókst heildarveiðin um 11% milli ára og skiptist þannig milli þjóðanna.
 
	
		
			| Ísland | 9.433 tunnur | 
		
			| Grænland | 8.431 tunnur | 
		
			| Noregur | 1.965 tunnur | 
		
			| Nýfundnaland |     461 tunna | 
		
			| Danmörk og Svíþjóð | 1.000 tunnur | 
	
 
 
Hrogn úr grásleppuafla sem veiðist úti fyrir ströndum Svíþjóðar og Danmörku er að mestu leyti seld á fiskmörkuðum þar sem kaupendur eru fiskbúðir og veitingahús.  Í Danmörku er um árlegan viðburð að ræða þegar grásleppuhrogn koma og þau sett á matseðla sem sérstakur réttur (Frisk stenbiterrogn).  Rétturinn nýtur sívaxandi vinsælda - sýrður rjómi með tilheyrandi kryddi í botninn og hrognin sett ofan á og vafla við hliðina - lostæti.
 
 
 
Hvernig væri nú að veitingageirinn á Íslandi tæki þann danska sér til fyrirmyndar?