09.04.2020 13:24

Enginn landgangur og kosturinn Sótthreinsaður

Guðjón Guðmundsson

 - gugu@fiskifrettir.is

9. apríl 2020 kl. 09:00

 

Sigurgeir Pétursson skipstjóri. Mynd/aðsend.

 

Geiri Pétursson býr sig undir 4-6 mánuði um borð í Tai an.

Geiri Pétursson er skipstjóri verksmiðjuskipsins Tai An sem gert er út á veiðar á hokinhala og kolmunna suður undir Hornhöfða. Honum brá í brún þegar skipið kom í höfn í Argentínu fyrir skemmstu eftir 45 daga veiðiferð. Landgangurinn var ekki settur upp, enginn úr 95 manna áhöfn skipsins mátti fara frá borði. Kosturinn var tilbúinn á hafnarbakkanum. Það átti að taka hann beint um borð, landa og halda á ný til veiða.

Geiri býr sig nú undir það að komast ekki frá borði í 4-6 mánuði samfellt ef heldur fram sem horfir.

Höfnin skelfilega hljóðlát

„Það var undarleg upplifun eftir 45 daga á sjó að sjá landganginn ekki settan upp þegar við komum til hafnar. Hafnar sem var skelfilega hljóðlát. Umbúðir utan um kostinn voru sprautaðar með sótthreinsivökva. Þetta er fullkomlega súrrealískt,“ segir Geiri.

Geiri hefur verið búsettur í Nýja-Sjálandi undanfarna þrjá áratugi og verið með skip sem gerð eru út frá Ástralíu og Argentínu til veiða á tannfisk og hokinhala svo eitthvað sé nefnt. Hann er auk þess ræðismaður Íslands í Nýja-Sjálandi og framkvæmdastjóri Knarr samstæðunnar í landinu. Sigurgeir var fyrstur allra sem skipstjóri til að veiða tannfisk í troll suður við Suðurheimskautið árið 1995. Tannfiskur er álíka verðmætur og túnfiskur.

Togarinn Tai An er gerður út til veiða á hokinhala og kolmunna suður af Hornhöfða syðst í Argentínu. Úr aflanum er unnið surimi. Þegar skipið kom til hafnar í Ushuaia, syðstu hafnar Argentínu, var það með 1.210 tonn af forsnum afurðum, 190 tonn af mjöli. Aflinn var um 5.500 tonn upp úr sjó sem fékkst á 43 dögum.

Annað skip i eigu sömu útgerðar kom nokkru síðar með fullfermi,  630 tonn af frosnum afurðum.   Það heitir San Arawa 2 og er 65 metra langur flakafrystitogari. Þar um borð er íslenskur skipstjóri,  Magnús Þórarinsson sem býr a Íslandi og vinnslustjórinn er Ingvar Þór Jóhannesson sem hefur búið í 15 ár i Argentínu.

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 156
Gestir í dag: 6
Flettingar í gær: 1858
Gestir í gær: 51
Samtals flettingar: 1061430
Samtals gestir: 50960
Tölur uppfærðar: 22.12.2024 02:18:15
www.mbl.is