28.04.2020 22:49Hoffell með 10.000 tonnSíðdegis í dag, þriðjudaginn 28.apríl, kom Hoffell að landi með tæplega 1700 tonn af kolmunna.
Með þessum kolmunna afla er Hoffell komið í 10.000 tonn og er eins og sakir standa aflahæst uppsjávarveiðiskipa þrátt fyrir að vera burðarminna en flest hinna skipanna á miðunum.
Sigurður Bjarnason skipstjóri á Hoffelli sagði að aflinn hefði fengist suður af Færeyjum en þangað er um 30 klukkustunda sigling frá heimahöfn á Fáskrúðsfirði.
“Við fengum þetta í fjórum hollum” sagði skipstjórinn og hafði orð á því að eftir erfiðan vetur, svona veðurfarslega séð, hefði verið mikil blíða á miðunum og töluverð veiði. Þá lá beinast við að inna Sigurð eftir því hvort að nóg væri af kolmunna? “Já, en það vantar aðeins neista” svaraði hann og bætti svo við “hann kemur bráðum”. Og þar talar maðurinn með reynsluna. Þegar skipstjórinn var svo spurður að því hver ástæðan væri fyrir þessari velgengi svaraði hann um hæl að því væri að þakka stífri sjósókn, góðri áhöfn og heppni. Hoffell á eftir að veiða 8000 tonn af kolmunna og reiknar Sigurður með að það muni taka svona 5 túra ef allt gengur samkvæmt áætlun. “ Ég er mjög bjartsýnn, við förum út strax að lokinni löndun.
Það þarf að taka á meðan er því fiskurinn bíður ekki” sagði Sigurður skipstjóri að lokum.
Skrifað af Þorgeir |
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning: HörgárbyggðUm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 1154 Gestir í dag: 35 Flettingar í gær: 3737 Gestir í gær: 72 Samtals flettingar: 1060570 Samtals gestir: 50938 Tölur uppfærðar: 21.12.2024 15:22:06 |
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is