|
1345 Blængur NK 125 MYND Guðlaugur björn Birgisson |
|
|
Við erum nú búnir að fá 620 tonn upp úr sjó á 12 dögum og afköstin í vinnslunni hjá okkur hafa verið um og yfir 70 tonn á sólarhring sem er mjög gott,“ er haft eftir Theodóri Haraldssyni, skipstjóra á Blængi á vef Síldarvinnslunnar.
„Aflinn hefur verið það mikill að við höfum miklu meira verið á reki en á veiðum. Vonandi heldur þetta áfram svona. Við gerðum ráð fyrir að túrinn tæki 40 daga en ef veiðin verður svipuð áfram verður hann mun styttri,“ segir Theodór.Frystitogarinn er nú staddur á miðunum í Barentshafi, en hann lagði af stað þangað 8. júní.
Þá hafa veiðar gengið vel frá upphafi og hófust þær á Skolpenbanka, að sögn skipstjórans. „Veiddum vel fyrstu tvo dagana en síðan dró heldur úr. Þá leituðum við austur eftir og höfum verið á Kildinbanka í góðri veiði síðan, en Kildinbanki er norðaustur af Múrmansk. Hér hafa um 20 skip verið að veiðum í rjómablíðu og það er ekki yfir nokkrum sköpuðum hlut að kvarta.“
???????