Týr kallaður út til Siglufjarðar
Skipið á siglingu út Eyjafjörð. mbl.is/Þ?orgeir Baldursson
Týr, varðskip Landhelgisgæslunnar, er á leið til Siglufjarðar til að sinna sjúkraflutningum.
Áhöfn lagði af stað nú á tíunda tímanum úr Eyjafirði en að sögn Ásgeirs Erlendssonar upplýsingafulltrúa Gæslunnar er um þriggja og hálfs tíma ferð inn á Siglufjörð. Þar mun áhöfn sækja veikan mann og flytja sjóleiðina til Akureyrar, en ófært er landleiðina.
Landfestar leystar frá Akureyri í kvöld. mbl.is/Þ?orgeir Baldursson
Til taks í Eyjafirði
Týr hefur verið til taks í Eyjafirði síðustu daga vegna snjóflóðahættu á Norðurlandi en þetta er fyrsta formlega útkall þess frá því það kom norður á fimmtudag, samkvæmt upplýsingum frá Gæslunni.