12.02.2021 20:51Tveimur stórum verkefnum nýlokið í Slippnum AkureyriFrystitogarinn Blængur NK 125, sem er í eigu Síldarvinnslunnar í Neskaupstað, kom til viðhalds í Slippnum á Akureyri í lok desember. Mynd/Þorgeir Baldursson
Verkefnastaðan er góð hjá okkur eins og er, en þó er svigrúm til að bæta við verkefnum,” segir Ólafur Ormsson sviðsstjóri skipaþjónustu Slippsins á Akureyri. Frystitogarinn Blængur NK 125, sem er í eigu Síldarvinnslunnar í Neskaupstað, kom til viðhalds í Slippnum á Akureyri í lok desember. Meðal verkefna var almálning á skipinu, þ.e.a.s. málning á yfirbyggingu, þilförum, síðum og botni. Veltitankur var smíðaður á skipið og var hann settur upp ásamt tengingum og tilheyrandi stjórnbúnaði. Afgasketill var hreinsaður, ýmis innréttingarvinna í matsal og vistarverum skipverja var framkvæmd auk þess sem búnaður á vinnsluþilfari var yfirfarinn og önnur hefðbundin viðhaldsverkefni kláruð.
Þetta kemur fram í frétt Slippsins. Að sögn Ólafs Ormssonar sviðsstjóra skipaþjónustu Slippsins gekk verkefnið vel. Það sé augljóst að vilji útgerðarinnar er að halda skipinu vel við, sést það best á útliti og ástandi búnaðar skipsins, að hans sögn.
Eins segir frá því að grænlenska línuskipið Masilik, sem er í eigu Royal Greeland, er farið á veiðar eftir að hafa verið í slipp allan janúarmánuð. Í skipinu var unnið við endurbætur á klæðningum á vinnsludekki og það heilmálað. Skipið var jafnframt öxuldregið, unnið að ýmsum viðhaldsverkum í vélarrúmi auk þess sem akkerishús var lagfært eftir að skipið fékk á sig brot fyrir skemmstu.
„Björg EA 7 er komin til okkar og verður hjá okkur fram í miðjan marsmánuð í reglubundnu viðhaldi auk þess sem nýr lestarbúnaður frá Slippnum verður settur í skipið. Grænlenski togarinn Angunnguaq II kemur í næstu viku en Slippurinn sér um að setja nýja aðalvél í skipið, endurnýja gír og margskonar vélbúnað í vélarrúmi skipsins. Verkefnastaðan er góð hjá okkur eins og er, en þó er svigrúm til að bæta við verkefnum,” segir Ólafur. Skrifað af Þorgeir |
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning: HörgárbyggðUm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 526 Gestir í dag: 38 Flettingar í gær: 1455 Gestir í gær: 74 Samtals flettingar: 991947 Samtals gestir: 48545 Tölur uppfærðar: 21.11.2024 10:27:28 |
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is