03.08.2021 19:57

Höfrungur III AK með 800 tonn upp úr sjó

                                1902 Höfrungur 111 Ak 250 mynd þorgeir Baldursson 

Frystitogarinn Höfrungur III AK er nú í höfn í Reykjavík eftir velheppnaða veiðiferð. Friðrik Ingason, skipstjóri í veiðiferðinni,

segir í samtali við heimasíðu Brims að heildaraflinn hafi verið 800 tonn upp úr sjó en skipið var hvort tveggja á Vestfjarðamiðum og SV-miðum.

Við fengum mjög góða ýsuveiði á Látragunni og það var alls ekki svo mikið af þorski eða öðrum fisktegundum á slóðinni.

Þetta var nánast hrein ýsa og stundum þurftum við ekki að toga í nema 10-15 mínútur til að fá góðan afla.

Það var mjög mikið af gullkarfa á ferðinni þegar við komum á Halann en með því að beita lagni gátum við fengið ufsa og þorsk,”

segir Friðrik en hann getur þess að karfagengdin hafi orðið til þess að hrekja skipið frá veiðum á Halanum. Út af Barðinu, sem er fyrir utan Halann, hafi þeir hins vegar fengið þokkalega þorsk- og grálúðuveiði.
Síðari hluta veiðiferðarinnar vörðu skipverjar á SV-miðum.

,,Við fengum ágætan djúpkarfaafla í Skerjadjúpinu og náðum þar einum mjög góðum degi.

Önnur skip voru búin að gera það gott á þessum veiðum marga daga á undan og þó við höfum rétt náð í skottið á þessari hrotu getur maður ekki verið annað en sáttur við aflabrögðin.

Við vorum einnig á Fjöllunum og þar eins og svo víða er gullkarfinn að þvælast fyrir okkur. Okkur tókst þó að veiða sæmilegt magn af ufsa.

Það var helst með því að draga trollið á nóttinni að okkur tókst að veiða nokkuð hreinan ufsa og forðast karfann,” segir Friðrik Ingason.

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 2696
Gestir í dag: 15
Flettingar í gær: 4063
Gestir í gær: 33
Samtals flettingar: 1121822
Samtals gestir: 52256
Tölur uppfærðar: 18.1.2025 06:10:23
www.mbl.is