03.11.2021 17:22Loðnan hífir upp útflutningsverðmætin
Á fyrstu 9 mánuðum ársins er útflutningsverðmæti loðnuafurða komið í tæplega 21 milljarð króna.Á fyrstu níu mánuðum ársins er útflutningsverðmæti sjávarafurða komið í rúma 213 milljarða króna. Það er rúmlega 8% aukning í krónum talið miðað við sama tímabil í fyrra. Gengi krónunnar hefur að jafnaði verið um 2% sterkara fyrstu 9 mánuði ársins miðað við sama tímabil í fyrra og er aukningin þar með aðeins meiri í erlendri mynt, eða 10%. Þetta kemur fram í greiningu frá SFS. Aukningu í útflutningsverðmætum sjávarafurða má að langstærstum hluta rekja til loðnu. Á fyrstu 9 mánuðum ársins er útflutningsverðmæti loðnuafurða komið í tæplega 21 milljarð króna. Á sama tímabili í fyrra var verðmæti þeirra rétt um 2 milljarðar króna, en þar var um birgðasölu að ræða enda hefur loðnubrestur verið undangengin tvö ár. Ef verðmæti loðnuafurða er undanskilið í tölum um útflutning, stendur útflutningsverðmæti sjávarafurða nánast í stað á milli ára. Þar innan eru þó talsverðar breytingar. Þannig er útflutningsverðmæti botnfiskafurða ríflega 6% meira í ár en á sama tímabili í fyrra. Aukninguna má rekja til helstu tegunda botnfiska, þorsk, ýsu, ufsa og karfa. Á móti vegur verulegur samdráttur í útflutningsverðmæti annarra uppsjávarfiska en loðnu, það er síld, kolmunna og makríl, eða sem nemur rúmum 32%. Útflutningsverðmæti þessara þriggja tegunda nemur samanlagt tæpum 21 milljarði króna á fyrstu 9 mánuðum ársins, sem er á pari við útflutningsverðmæti loðnu. Skrifað af Þorgeir |
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning: HörgárbyggðUm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 683 Gestir í dag: 11 Flettingar í gær: 4063 Gestir í gær: 33 Samtals flettingar: 1119809 Samtals gestir: 52252 Tölur uppfærðar: 18.1.2025 04:35:28 |
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is