14.12.2021 23:50Mannabreytingar hjá Slippnumdes 14, 2021Páll Kristjánsson ráðinn framkvæmdastjóri Slippsins
Páll Kristjánsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Slippsins á Akureyri og tekur við starfinu um áramótin. Páll hefur stýrt framleiðslusviði félagsins. Hann er viðskiptafræðingur með framhaldsmenntun í fjármálum og alþjóðaviðskiptum frá Háskólanum í Árósum í Danmörku. Eiríkur S. Jóhannsson sem verið hefur framkvæmdastjóri Slippsins í sex og hálft ár lætur af störfum á sama tíma. Hann mun verða stjórn og stjórnendum til ráðgjafar á komandi mánuðum. Starfsfólki Slippsins var greint frá þessu í dag, ásamt öðrum skipulagsbreytingum í rekstri félagsins.
Margt í pípunumStarfsmenn Slippsins eru um 150 en má segja að þeir séu mun fleiri, því við leitum í ríku mæli til samstarfsfyrirtækja, þannig getum við þjónað viðskiptavinum okkar enn betur og boðið upp á heildarlausnir. Slippurinn hefur alltaf lagt ríka áherslu á góða og faglega þjónustu, sem er líklega
Bjartsýnn á framtíðinaÉg lít stoltur um öxl. Tími minn hjá Slippnum hefur verið mér gefandi. Við höfum í sameiningu treyst undirstöður fyrirtækisins til muna og lagt mikið af mörkum til nýsköpunar, sem ég trúi að skapi Slippnum fjölmörg sóknartækifæri. Ég er bjartsýnn fyrir hönd Slippsins á komandi tímum, enda hefur starfsfólk félagsins sýnt og sannað að það er í fremstu röð á sínu sviðið í þjónustu við alþjóðlegan sjávarútveg sem og aðra viðskiptavini, „ segir Eiríkur S. Jóhannsson. Aðspurður um tímasetningu þessara breytinga, segir hann „Ég er í stjórnum margra félaga sem krefjast mun meiri athygli en ég hef náð að veita að undanförnu. Slippurinn er í góðum höndum hjá Páli og hans fólki, því var þessi ákvörðun einföld og að ég tel, félaginu til framdráttar,“ segir Eiríkur S. Jóhannsson.
Aðrar skipulagsbreytingar kynntarMagnús Blöndal Gunnarsson, sem verið hefur markaðsstjóri undanfarin ár, tekur við stjórn framleiðslusviðs félagsins af Páli Kristjánssyni. Magnús er sjávarútvegs- og fiskeldisfræðingur frá Háskólanum á Akureyri og Háskólanum að Hólum. Samhliða þessum breytingum mun Kristján H. Kristjánsson mannauðsstjóri taka yfir kynningarmál Slippsins. Kristján er menntaður byggingafræðingur, með áherslu á stjórnun, frá VIA University í Horsens í Danmörku. Nýverið tók Sveinbjörn Pálsson við stjórn Skipaþjónustusviðs Slippsins. Sveinbjörn er iðnaðarverkfræðingur frá Chalmers Tekniska Högskola í Gautaborg og hefur víðtæka starfreynslu til sjós og lands. Hann kom til Slippsins frá upplýsingatæknifyrirtækinu Þekkingu. Í sumar tók Elsa Björg Pétursdóttir við starfi fjármálastjóra félagsins. Elsa er menntaður viðskiptafræðingur frá Háskólanum á Akureyri og hefur m.a. starfað um árabil hjá Íslandsbanka, seinast sem svæðisstjóri einstaklingsviðskipta á Norður- og Austurlandi. Fjölbreytni starfa er mjög mikil hjá Slippnum og starfsmannavelta almennt lítil. Safnast hefur upp áralöng þekking og reynsla sem einkennir vinnubrögð hjá starfsmönnum félagsins. Fréttatilkynning frá Slippnum Akureyri 14.12.2021 Skrifað af Þorgeir |
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning: HörgárbyggðUm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 1454 Gestir í dag: 42 Flettingar í gær: 3737 Gestir í gær: 72 Samtals flettingar: 1060870 Samtals gestir: 50945 Tölur uppfærðar: 21.12.2024 16:55:58 |
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is