2265 Arnar Hu 1 mynd þorgeir Baldursson 2021
Frystitogari FISK Seafood, Arnar HU-1, er nú skammt frá Sauðárkróki en þangað stefnir hann með 646 tonna afla, þar af um 194 tonnum af ufsa og 175 tonnum af þorski.
Fram kemur á vef útgerðarinnar að verðmæti aflans er talið vera um 295 milljónir króna.
„Við vorum 24 daga á veiðum og við vorum frá Víkurál að Skagagrunni. Veiðarnar hafa gengið nokkuð vel og við löndum um 18.400 kössum.
Veðrið hefur verið gott miðað við að það er desember,“ er haft eftir Guðjóni Guðjónssyni skipstjóra.
|