2560 GUÐMUNDUR ARNAR EA 102 EX Straumur ST65 Mynd þorgeir Baldursson 2021
Af Vef Aflafretta
Síðan árið 2015 þá hefur verið gerður út bátur frá Hólmavík sem heitir Straumur ST 65, sá bátur var gerður út á línu og grásleppu
og var iðulega með aflahæstu grásleppubátum landsins.
á bátnum var ekki mikill kvóti aðeins um 50 tonn, sá kvóti var seldur í lok júlí 2021
og kaupandinn var Einhamar ehf í Grindavík og fór allur kvótinn yfir á Véstein GK. nema lítill hluti af makríl sem fór yfir á Þinganes SF.
báturinn sjálfur var síðan seldur núna í janúar 2022 til Dalvíkur .
kaupandinn þar var G.Ben útgerðarfélag. enn þeir gera út bátanna Arnþór EA og Sæþór EA.
Sæþór EA er gerður út á net allt árið, enn Arnþór EA hefur verið gerður út á grásleppu.
Nýi báturinn hefur fengið nýtt nafn og heitir Guðmundur Arnar EA 102.
Þess má geta að þessi bátur var smíðaður árið 2002 og hans fyrsta nafn var Kristinn SH 112, en það jafn er ansi þekkt
|