 |
1868 Helga Maria RE 1 á toginu á Eldeyjarbanka mynd þorgeir Baldursson 2022
|
„Það má segja að allt hafi gengið að óskum hjá okkur síðustu vikurnar. Loksins eftir langa mæðu höfum við fengið gott veður og aflinn í síðasta túr, sem lauk nú í byrjun vikunnar, var um 600 kör af fiski eða um 180 tonn,” segir Friðleifur Einarsson, skipstjóri á ísfisktogaranum Helgu Maríu AK, í viðtali á heimasíðu Brims.
Að hans sögn var mest verið að veiðum á hinu svokallaða Fjallasvæði.
„Við vorum að leita að ufsa og reyndum af fremstu megni að forðast tegundir eins og þorsk, ýsu og gullkarfa. Það tókst bærilega, í ljósi þess hve mikið er af fiski af þessum tegundum. Þó vorum við með 65 tonn af þorski og 55 tonn af ufsa í veiðiferðinni og svo ýsu og karfa,” segir Friðleifur en hann kveður ufsann ekki að finna í þéttum torfum. Þess í stað sé hann nokkuð dreifður og það verði að hafa töluvert fyrir því að leita að honum.
„Það má segja að ufsinn hafi einskorðast við Fjallasvæðið. Við fórum aðeins á Eldeyjarbankann en þar var bara þorsk og ýsu að finna.”
Að sögn Friðleifs er mikill munur að sækja sjó þegar veður er skaplegt í stað þess barnings sem var framan af ári. Gott veður skili betri og jafnari veiði en brælutíðin sem menn áttu að venjast fram í aprílmánuð.
„Það veitir ekki af fyrir vinnsluna. Viðey RE er í slipp og því eru aðeins tveir ísfisktogarar sem sjá um hráefnisöflunina,” segir hann.