24.05.2022 08:10BLÓÐÞORRI GREINIST Í FISKELDI VIÐ VATTARNESHið meinvirka afbrigði ISA-veirunnar, sem veldur blóðþorra, greindist í sýni sem tekið var í laxeldisstöð við Vattarnes í Reyðarfirði í síðustu viku. Aðgerðaráætlun hefur verið virkjuð og mun öllum laxi í stöðinni verða slátrað. Veiran er skaðlaus mönnum og sjúkdómurinn hefur hvergi í heiminum greinst í villtum laxi. Frá þessu er greint á heimasíðu Matvælastofnunar.
Allt frá því að ISA-veiran greindist fyrst í laxi í sjókví við Gripalda í Reyðarfirði í lok nóvember 2021, sjá frétt Matvælastofnunar frá 26. nóvember sl., hafa umfangsmiklar sýnatökur og ströng vöktun átt sér stað á öðrum eldissvæðum á Austfjörðum, með áherslu á Sigmundarhús og Vattarnes í Reyðarfirði. Eins og fram kom í frétt Matvælastofnunar 29. apríl sl., var greining á meinvirku afbrigði ISA-veirunnar staðfest á ný í einni kví við Sigmundarhús í apríl sl. Öllum laxi á þeim stað var umsvifalaust fargað. Undir lok síðustu viku voru svo tekin sýni úr grunsamlegum laxi við Vattarnes í Reyðarfirði, en það er jafnframt eina staðsetningin í firðinum sem Laxar fiskeldi ala lax í dag. Niðurstöður fengust í gær 22. maí, sem staðfesta að um hið meinvirka afbrigði veirunnar er að ræða. Við Vattarnes eru í eldi um 1.160.000 laxar í níu sjókvíum og er megnið af fiskinum á bilinu 2-3 kg. Til að gæta fyllstu varúðar hafa Laxar fiskeldi, í samvinnu við Matvælastofnun, nú þegar virkjað aðgerðaráætlun með tilliti til slátrunar og tæmingu allra kvía. Þar með mun allur Reyðarfjörður tæmast af eldislaxi og fara í eldishvíld. Með þessari aðgerð skal gert hið ýtrasta til að uppræta og hreinsa fjörðinn af ofangreindu veirusmiti. ISA-veiran tilheyrir fjölskyldunni Orthomyxoviridae og býr yfir flestöllum eiginleikum inflúensaveira, sem við þekkjum hjá bæði fuglum og spendýrum. Þekkt eru tvö afbrigði ISA-veirunnar. Annað er góðkynja afbrigði sem aldrei veldur sjúkdómi eða tjóni (HPR0) og hitt er meinvirkt og veldur misalvarlegri sýkingu og afföllum (HPR-deleted). Veiran er skaðlaus mönnum og berst ekki með fiskafurðum. Þess ber einnig að geta að klínískur sjúkdómur hefur hvergi á heimsvísu verið staðfestur í villtum laxi í sínu náttúrulega umhverfi, jafnvel þótt hin meinvirka gerð veirunnar hafi verið einangruð úr slíkum fiski. Heimild audlindin .is Skrifað af Þorgeir |
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning: HörgárbyggðUm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 1527 Gestir í dag: 51 Flettingar í gær: 1455 Gestir í gær: 74 Samtals flettingar: 992948 Samtals gestir: 48558 Tölur uppfærðar: 21.11.2024 10:48:29 |
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is