14.06.2022 08:20Bolungarvík verður hátæknisamfélag
Samey Robotics undirritaði tvo samninga þann 10 á lokadegi sýningarinnar við Jakob Valgeir ehf í Bolungarvík og Arctic Fish á Íslensku sjávarútvegssýningunni í Smáranum í Kópavogi.
Frá undirritun samnings Samey Robotics og Arctic Fish. Aðsend mynd
Jakob Valgeir ehf. fjárfestir í róbotakerfum fyrir hátæknifiskvinnslu sína í Bolungarvík sem er búin að vera í stöðugum vexti í mörg ár. „Þessi lausn mun sjá um að pakka frosinni afurð í umbúðir fyrir útflutning og mun straumlínulaga alla pökkun. Kerfið er hannað til að vaxa með aukinni framleiðslu Jakobs Valgeirs og auðvelt er að bæta við kerfið samhliða auknum vexti fyrirtækisins ” segir Jón Ragnar Gunnarsson, sölustjóri Samey Robotics ehf á Íslandi.
Samey Robotics og Arctic Fish undirrituðu einnig tímamótasamning í dag en þar er um að ræða kerfi sem getur staflað allri framleiðslu Arctic Fish á laxi í Bolungarvík á bretti með tveimur sjálfvirkum róbotakerfum. „Samkvæmt útreikningum okkar verða þá fleiri róbotar að störfum í Bolungarvík en í nokkru öðru bæjarfélagi í heimi miðað við höfðatölu og setur það Bolungarvík í fremstu röð umbreytinga í átt að hátækni samfélagi með betri störf og meiri framleiðni" segir Kristján Ármannsson stjórnandi vélahönnunnnar hjá Samey Robotics. Leiðandi í yfir 32 ár Samey Robotics hefur í yfir 32 ár verið leiðandi í sjálfvirknivæðingu íslensks iðnaðar og brautryðjandi í notkun róbota/þjarka í sjálfvirkni. Samey Robotics hefur með þessum lausnum aðstoðað fjölda fyrirtækja til lands og sjávar á farsælan og árangursríkan hátt við að auka framleiðni og rekstrarhagkvæmni. Á sjötta hundrað verksmiðjur og vinnslur í 25 löndum starfa í dag með kerfum frá Samey Robotics. Verkefnastaðan hjá Samey Robotics er góð og yfir 40 róbotar í pöntun hjá fyrirtækinu. „Við horfum björtum augum fram á veginn og búum að því að vera með flottasta starfsfólk í sjálfvirkni á Íslandi – Við erum og ætlum áfram að vera leiðandi afl í sjálfvirkni á Íslandi” segir Kristján Karl Aðalsteinsson sölustjóri Samey Robotics ehf. Skrifað af Þorgeir |
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning: HörgárbyggðUm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 1154 Gestir í dag: 35 Flettingar í gær: 3737 Gestir í gær: 72 Samtals flettingar: 1060570 Samtals gestir: 50938 Tölur uppfærðar: 21.12.2024 15:22:06 |
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is