|
3013 Sólborg RE 27 á toginu á Papagrunni i kvöld mynd þorgeir Baldursson |
|
3013 Sólborg RE27 á veiðum mynd þorgeir Baldursson 2022 |
Allri áhöfn frystitogarans Sólborgar RE-27 hefur verið sagt upp. Runólfur Viðar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Útgerðarfélags Reykjavíkur og eigandi frystitogarans, staðfestir þetta og segir að ástæða uppsagnanna sé sú að félagið íhugi að kaupa nýjan togara. Ráðningarsamband í lausu lofti Runólfur segir það eiga eftir að koma í ljós hvort áhöfnin verði ráðin áfram og bætir við að menn séu ekki ráðnir hjá útgerðinni heldur á einstök skip. „Þannig að þegar þú skiptir um skip þá þarftu að segja fólki upp og skrifa undir nýjan ráðningarsamning hjá hverjum og einum,“ segir hann. Spurður hvort starfsfólkið sé þá í lausu lofti um áframhaldandi ráðningu, svarar Runólfur því játandi. Ekki liggja þó fyrir frekari upplýsingar um nýtt skip. Skipið smíðað árið 1988 Sólborg RE-27 kom inn á íslenska skipaskrá í júlí 2019 og var áður í eigu Arctic Prime Fisheries á Grænlandi. Hún er 75,9 metrar að lengd og um 2.550 brúttótonn. Skipið var smíðað í Noregi árið 1987 fyrir Grænlandsmarkað