25.09.2022 22:42Sjór flæðir yfir götur og inn í hús á AkureyriSjór hefur gengið á land á Akureyri og flæðir yfir götur og inn í hús niðri á Eyrinni. Þar sem staðan er hvað verst er um 15 til 20 sentimetra djúpt vatn inni í húsunum. Unnið er að því að hreinsa frá niðurföllum og dæla vatni, en það gengur hægt að sögn Aðalsteins Júlíussonar, aðalvarðstjóra hjá lögreglunni á Akureyri. „Það er svo gríðarlegur áhlaðandi hérna, það kemur bæði upp á bryggjurnar og upp úr niðurföllum, yfir garðana og yfir Eyrina. Það er mjög mikið vatn hérna hjá okkur og það er verið að vinna í því að dæla þessu burt en það gengur hægt. Það er aðeins farinn að sjást einhver smá árangur,“ segir Aðalsteinn í samtali við mbl.is Það er upp í 15 til 20 sentimetra djúpt vatn inni í sumum húsum. Þetta er það mesta sem við höfum séð hérna,“ bætir hann við. „Okkar fólk og björgunarsveitir eru á fullu að hreinsa upp úr niðurföllum, niðurföllin eru orðin mikið stífluð. Það er unnið í því að finna niðurföll og hleypa niður.“ Unnið að verðmætabjörgunAðalsteinn segir þetta gerast bæði vegna sjávarstöðunnar sem er hærri en gengur og gerist og mikils áhlaðanda. „Það stendur hérna beint inn fjörðinn. Gæslan hafði varað við hárri sjávarstöðu og Veðurstofan, en þetta er sérstaklega slæmt hérna niðri á Oddeyrinni.“ Hann segir bæinn hafa gert einhverjar ráðstafanir vegna viðvarana um háa sjávarstöðu, en sjógangurinn sé svo mikill að það hafi ekki dugað til. Sjór hefur flætt hefur inn í einhver íbúðarhús en aðallega er um að ræða atvinnuhúsnæði. „Það eru fiskvinnslur þarna niður frá, vélsmiðjur, söluaðilar með búvélar og það er allur fjárinn þarna niður frá, þannig að það eru mikil verðmæti undir. Það er verið í verðmætabjörgun. Bjarga hlutum upp fyrir þurrt.“ Þær götur sem mest hefur flætt yfir eru Norðurgata, Gránufélagsgata og Eiðsvallagata og biðlar lögregla til fólks að aka ekki um þær götur. Rafmagnslaust var á Akureyri í skamman tíma rétt eftir hádegi en rafmagn er nú komið aftur á bæinn, að sögn Aðalsteins. Hér að neðan er myndasyrpa dagsins heimild mbl.is myndir Þorgeir Baldursson
Skrifað af Þorgeir |
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning: HörgárbyggðUm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 1527 Gestir í dag: 51 Flettingar í gær: 1455 Gestir í gær: 74 Samtals flettingar: 992948 Samtals gestir: 48558 Tölur uppfærðar: 21.11.2024 10:48:29 |
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is