|
Flutninga skipið Key Bora mynd .þorgeir Baldursson
|
7866 björgunnarskipið Hafdis mynd þorgeir Baldursson |
|
Flutningaskipið Key Bora, sem siglir undir fána Gíbraltar, tók niðri í Fáskrúðsfirði í dag og varð bilun í stýrisbúnaði. Skipið losnaði af sjálfsdáðum og er nú fylgt upp í höfn.
Þetta segir Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, í samtali við mbl.is.
Útkallið barst björgunarsveitinni klukkan 14.15 en bilun varð í stýrinu og tók skipið vinkilbeygju neðan við bæinn Kappeyri.
Skipið losnaði af sjálfdáðum korteri fyrir klukkan þrjú. Björgunarskipið Hafdís var sent á vettvang frá Neskaupstað og aðeins 10 mínútum eftir að útkallið barst var Hafdís mætt að Key Bora. Engar skemmdir eru sjáanlegar á skipinu að sögn Jóns.
Hafdís fylgir nú skipinu í höfn á Fáskrúðsfirði.