|
3035 Hoffell SU 80 Mynd þorgeir Baldursson 2022 |
Ísland og Færeyjar hafa gengið frá samningum um fiskveiðar árið 2025.
Ákveðið var í kjölfar viðræðna í byrjun desember að framlengja gildandi samningum milli ríkjanna og í því felst að skip beggja ríkja fá að veiða kolmunna og norsk-íslenska síld í lögsögum hvors annars.
Fá færeysk skip að veiða 5.600 tonn af botnfiski á Íslandsmiðum. Þar af má allt að 2.400 tonn vera þorskur og 400 tonn af keilu. Þá fá Færeyjar 5% af heildarkvóta í loðnu en þó ekki meira en 30 þúsund tonn.
Íslendingar fá 1.300 tonn af markílkvóta Færeyinga, en enn er ósamið milli ríkjanna um makrílveiðar. Færeyjar hafa þó gert samning um makrílveiðar við Noreg og Bretland án aðkomu Íslands, Evrópusambandsins og Grænlands.
Fram kemur í tilkynningu á vef sjávarútvegs- og samgönguráðuneytis Færeyja (Fiskivinnu- og samferðslumálaráðið) að upphaflega hafi verið gert ráð fyrir að samningaviðræðurnar færu fram í Færeyjum fyrr í haust, en viðræðum hafi verið frestað eftir að tilkynnt var um að efnt yrði til þingkosninga Íslandi.
heimild Mbl.is