04.03.2025 23:43Ölduhæð 10 metrar og djöflagangur engu líkur
Vestmannaey VE landaði í heimahöfn í Vestmannaeyjum í gær og Bergur VE landaði þar í dag. Egill Guðni Guðnason, skipstjóri á Vestmannaey, talaði mest um veðrið við tíðindamann Síldarvinnslunnar. „Það er ekki einleikið hvernig veðrið lætur við okkur þessa dagana. Það hefur í sannleika sagt verið djöfullegt. Janúar var í lagi veðurfarslega en febrúar var slæmur og þessir fyrstu dagar í mars hafa verið skelfilegir. Þegar við vorum á landleið var ölduhæðin 10 metrar og djöflagangurinn engu líkur. Þetta var stuttur túr hjá okkur. Við vorum að veiðum á Ingólfshöfða í tvo sólarhringa og fengum þar 60 tonn, mest ýsu. Svo gerðist það að allir skjár um borð duttu út og við urðum að koma okkur í land og láta lagfæra tölvukerfið og það gekk vel. Á þessum slóðum sem við vorum á er ekki jafnmikil fiskgegnd og í fyrra. Vertíðarfiskur er ekki kominn þarna. Líklega hefur loðnuleysið þessi áhrif,” sagði Egill Guðni. Vestmannaey hélt til veiða á ný í gær Jóni Valgeirssyni, skipstjóra á Bergi, var einnig tíðrætt um veðrið. „Við lönduðum á Djúpavogi sl. fimmtudag. Það var langmest ýsa sem fékkst á Ingólfshöfðanum. Það var þokkalegt veður í þeim túr. Síðan var haldið í Lónsbugtina og þá breyttist veðrið til hins verra. Sannleikurinn er sá að tíðarfarið hefur verið ógeðslegt að undanförnu. Í Lónsbugtinni fékkst skarkoli, þorskur og ýsa. Síðan var haldið á Ingólfshöfðann og þar fengum við þorsk í bölvaðri skítabrælu. Við erum svo að landa 63 tonnum í Eyjum í dag og erum fegnir að hvíla okkur á látunum,” sagði Jón. Skrifað af Þorgeir |
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning: HörgárbyggðUm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 1101 Gestir í dag: 10 Flettingar í gær: 4478 Gestir í gær: 133 Samtals flettingar: 1252230 Samtals gestir: 54995 Tölur uppfærðar: 12.3.2025 04:43:50 |
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is