|
Sildarvinnsluflotinn við bryggju i Neskaupstað mynd þorgeir Baldursson
Öll skip Síldarvinnslusamstæðunnar fyrir utan Barða NK eru komnar aftur á veiðar eftir vel heppnaða árshátíðarferð starfsmanna til Sopot í Póllandi.
Bergey VE og Vestmannaey VE héldu til veiða í gær og eru nú að toga á Víkinni en Gullver NS sigldi frá Seyðisfirði á mánudagskvöld og er nú við veiðar á Austfjarðamiðum.
Línuskipin tvö, Páll Jónsson GK og Sighvatur GK, hafa verið úti fyrir suðausturlandi, togarinn Jóhanna Gísladóttir GK er komin á karfaveiðar í Víkurálnum og krókaaflamarksbáturinn Fjölnir GK hélt í róður frá Skagaströnd.
Frystitogarinn Blængur NK lagði af stað á miðin frá Neskaupstað í gær. Hann sigldi fyrst til veiða á Tangarflakinu en í morgun var hann kominn yfir á Gerpisgrunn. Uppsjávarskipin Beitir NK og Börkur NK fóru á síldarmiðin fyrir vestan land, í Jökuldýpinu og Kolluálnum, en veiðarnar hafa farið rólega af stað þar.
Barði mun slást í hópinn von bráðar og halda á síldarveiðar fyrir vestan landið.
Frystihús og salthús Vísis í Grindavík eru þegar komin á fullt skrið. Starfsfólk fiskiðjuversins í Neskaupsstað bíður þess að fá síld í hús en þá fara hjólin samstundis að snúast aftur þar á bæ.
Heimild Heimasiða SVN
|