05.02.2026 01:06Þorrablót Húna EA 740
Þorraveisla Hollvina Húna EA 740 var haldið um borð í bátnum i dag Var mikil og góð þáttaka, nánast setið í öllum sætum eins og meðfylgjandi myndir sýna vel. Það var Baldur Beck Húnafélagi sem átti hugmyndina af því að halda þorraveisluna og því skarð fyrir skyldi að hann hafi ekki getað verið með okkur vegna veikinda. Sigfús Ólafur B Helgason og Sigursteinn Kristinsson báru hitann og þungann af þessu verkefni og kláruðu það með sóma og báru þetta fram sem alvanir atvinnumenn í faginu væru. Á boðstólnum var allt er góð Þorraveisla á að bjóða uppá, nýtt og súrt og allt þar á milli, ásamt smá drukk, bjór og Íslenskt brennivín í staupið var á boðstólnum með og tóku gestir vel til matar síns. Vonandi er þessi þjóðlegi siður að halda þorraveislu komin til að vera í framtíðinni hjá Húnaköllum og reyndar konum líka. En látum myndirnar tala sýnu máli en verst að myndin getur ekki framkallað lyktina sem var dásamleg um borð í Húna í dag. Eftirtalin fyrirtæki og einstaklingar studdu Þorraveislu Húna í ár. Bjór: Kaldi Bjórverksmiðja Árskógsströnd. Allt Kjötmeti: Kjarnafæði/Norðlenska. Hákarl: Teitur Björgvinsson Hrísey. Harðfiskur: Darri Eyjabitar Grenivík. Kartöflur: Einarstaðir - Sílastaðir. Leirtau að láni : Íþróttafélagið Þór. Er þessum aðilum öllum færðar hjartans þakkir fyrir stuðninginn. Yfir borðhaldinu voru sýndar ljósmyndir sem teknar voru um borð í aflaskipinu Snæfelli EA 740 sumarið 1958 og þar voru mörg augnakonfektin. Hirljósmyndari Hollvina Húna Þorgeir Baldursson lét sig ekki vanta og fangaði herlegheitin á filmu.
Skrifað af Þorgeir |
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning: HörgárbyggðUm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 1626 Gestir í dag: 3 Flettingar í gær: 14803 Gestir í gær: 11 Samtals flettingar: 2554856 Samtals gestir: 71108 Tölur uppfærðar: 6.2.2026 05:57:31 |
||||||||||||||||||||||||||||
© 2026 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is