11.02.2026 22:41

Vill að Jamaíka læri af íslensku kerfi

Get lært mikið af stjórnun fiskveiða á Íslandi

11. febrúar 2026

Annakay Crawford er stödd á Akureyri um þessar mundir þar sem hún tekur þátt í sérhæfingarlínu GRÓ-n.Annakay Crawford er stödd á Akureyri um þessar mundir þar sem hún tekur þátt í sérhæfingarlínu GRÓ-námsins í fiskveiðistefnu og stjórnun, með áherslu á íslenska fiskveiðistjórnunarkerfið.
Ljósmynd: Þorgeir Baldursson.

Í dag er alþjóðlegur dagur kvenna og stúlkna í vísindum (IDWGIS) en hann er haldinn hátíðlegur víðsvegar um heim 11. febrúar ár hvert. Þema dagsins í ár er: Samþætting gervigreindar, félagsvísinda, STEM greina* og fjármála: Framtíð inngildingar fyrir konur og stúlkur.

Það er því viðeigandi að beina kastljósinu að fiskifræðingnum Annakay Crawford, sem er þátttakandi í Sjávarútvegsskóla GRÓ um þessar mundir.

Sjávarútvegsskólinn var stofnaður árið 1998 með þríhliða samkomulagi milli utanríkisráðuneytis Íslands, Háskóla Sameinuðu þjóðanna (UNU) og Hafrannsóknastofnunar (MFRI). Meginhluti dagskrár þátttakenda fer fram í starfsstöð Hafrannsóknastofnunar að Fornubúðum í Hafnarfirði en þeir taka einnig þátt í fjölbreyttum verkefnum tengdum fiskveiðum víða um land.

Af þessu tilefni báðum við Annakay Crawford að segja okkur frá sjálfri sér, af hverju hún valdi að starfa á sviði fiskveiðistjórnunar og hvað hún vonast til að fá út úr þátttöku sinni í GRÓ-náminu. Einnig er áhugavert að skoða hvað þessar tvær eyjar - Ísland og Jamaíka - eiga sameiginlegt og hvað helst aðgreinir þær á sviði fiskveiðistjórnunar.

„Ég ólst upp í litlu samfélagi sem heitir Waterford í St. Catherine sýslu á Jamaíka. Strangt og óvægið uppeldi einkenndi æsku mína og hafði mikil áhrif á þá manneskju sem ég er í dag. Ég á eina eldri systur og tvo yngri bræður og er sjálf einstæð móðir með tvö börn, Jaylu (17 ára) og Odane (13 ára). Ég vona innilega að börnin mín fái að njóta þeirrar menntunar sem þau óska sér í framtíðinni og allt bendir reyndar til þess að svo verði, þau eru bæði góðir námsmenn.

Menntun hefur alltaf skipt mig mjög miklu máli og í raun upplifði ég að hún væri eina leiðin fyrir mig að breyta mínum aðstæðum. Ég er með B.Sc.-gráðu í opinberri stjórnsýslu og er um það bil að ljúka meistaragráðu í alþjóðlegri stefnumótun og þróunarstjórnun. Meistaraverkefnið mitt fjallar um stjórnun fiskveiðigagna í Karíbahafinu, sem ég ber saman við Ísland og Noreg.

Til að efla fagþekkingu mína hef ég einnig lokið námskeiðum s.s. í verkefnastjórnun, stefnumótun, stjórnendafræðum, stjórnsýslu og viðskiptaritun hjá Management Institute for National Development, helstu mennta- og þjálfunarstofnun ríkisins á Jamaíku.“

Fiskveiðar skipta miklu fyrir þróun Jamaíka

Annakay segir að áhugi hennar á opinberri stjórnsýslu hafi kviknað snemma. Hún fékk ung starf í ráðuneyti atvinnu og félagsmála og undir handleiðslu yfirmanns síns, frú Kennedy, fékk hún mikilvægan innblástur. „Þar kynntist ég opinberri stjórnsýslu og ákvað að leggja stund á fagið og stefni á að fara síðar í doktorsnám og einblína á málefni fiskveiðistjórnunar.“

Áhugi hennar á fiskveiðum kviknaði árið 2018 með breytti skipan fiskveiðistjórnunar í Jamaíku. „Sem aðstoðarmaður forstjóra kynntist ég stefnumótun og ákvörðunum innan stjórnsýslunnar. Þá áttaði ég mig á því hve gríðarlega mikilvægar fiskveiðar eru sem lífsviðurværi strandbúa, fyrir fæðuöryggi og efnahagsþróunina í landinu.“

Í háskólanámi sínu beindi hún markvisst sjónum að verkefnum sem tengdust fiskveiðum: rannsóknaráætlunum, stafrænum breytingum, tækni og nýsköpun, stjórnsýslu, lögum um strandbyggðir og fleiru.

„Þessi verkefni mótuðu áhuga minn og styrktu þá sannfæringu að framtíð mín væri í málefnum fiskveiðistjórnunar og opinberri stjórnsýslu.“

Að vera kona í málefnum fiskveiðistjórnunar

Annakay viðurkennir að starfsvettvangurinn hafi verið krefjandi fyrir sig sem konu i karlaumhverfi. Hún byrjaði ferilinn sem ritari en hefur unnið sig upp í ábyrgðarstöður. „Ég hef verið heppin að vinna með leiðtogum sem hafa stutt mig og treyst mér.“

Vegferðin hefur ekki alltaf verið auðveld að mati Annakay en hún segir að skuldbinding hennar við eflingu fiskveiðistjórnunar á Jamaíka og sem og að styðja samfélög sem reiða sig á hana, sé það sem knýr hana áfram.

20. þing fiskveiðinefndar  Miðvestur-Atlantshafsins.

Hlutverk Blue Justice Initiative var að festa í sessi samræmda lands- og svæðisbundna stuðningsstarfsemi til að takast á við fiskveiðatengda glæpastarfsemi á Jamaíka og víðar.

Samráð við hagsmunaaðila og kynning á stafrænum vettvangi.

Veik gagnastjórnun stærsta áskorunin

Að mati Annakay er veik gagnastjórnun ein helsta hindrun bættrar fiskveiðistjórnunar á Jamaíku. Óáreiðanleg skráning og úrvinnsla gagna gerir það erfitt að byggja ákvarðanir á traustum gögnum, sem dregur úr virkri stjórnun, eftirliti og langtímaáætlun. Veik gagnakerfi gera einnig erfiðara að fylgjast með ólöglegum og óskráðum veiðum og draga úr áreiðanleika stofnmats.

„Þess vegna tel ég styrkingu gagnastjórnunar lykilatriði ef Jamaíka vill byggja upp sjálfbærar fiskveiðar til framtíðar.“

„Þátttaka mín í Sjávarútvegsskóla GRÓ hefur verið gríðarlega dýrmæt,“ segir Annakay. Auk námsins í Hafnarfirði hefur hún heimsótt Matís, fiskvinnslur, löndunarstaði og stofnanir víða um land. „Að sjá hvernig íslenskt fiskveiðikerfi virkar sem heild, frá gagnasöfnun til vinnslu og verðmætasköpunar, hefur opnað augun mín fyrir því hvað er mögulegt heima á Jamaíku.“

Hún vonast til að nýta nýfengna þekkingu til að efla gagnastjórnun, styðja við stefnumótun og hvetja sjómenn til nýsköpunar og til að efla þátttöku þeirra í virðiskeðjunni.

Líkt og ólíkt á Íslandi og Jamaíku

Hún segir að stærsti munurinn á löndunum tveimur varðandi fiskveiðistjórnun sé hvernig stjórnsýslan og fiskveiðiauðlindin er metin. „Á Íslandi er er litið á fiskveiðar sem þjóðarauðlind sem þarf stöðuga vernd og eftirlit. Lög, stofnanir, skráning og gagnaúrvinnsla, allt vinnur þetta saman. Ákvarðanir eru byggðar á vísindum og atvinnugreinin sjálf styður sjálf strangt eftirlit.“

„Á Jamaíku er atvinnugreinin einnig bundin reglum, en stjórnsýslan er sundurleitari og byggir oft á hefðum og persónulegum tengslum. Tengsl milli lagagreina, stofnana, eftirlits og gagna eru veikari enda gera margir sér ekki grein fyrir langtímavirði fiskveiða,“ segir Annakay.

Það er því ljóst að metnaðarfullt verkefni bíður Annakay þegar hún snýr heim með nýja þekkingu og hugmyndir um hvernig megi bæta má gagnastjórnun í þágu sjálfbærra fiskveiða Jamaíka.

 

*STEM stendur fyrir Science, Technology, Engineering and Mathematics

**IUU - Illegal, Unreported and Unregulated Fishing

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 431
Gestir í dag: 2
Flettingar í gær: 2765
Gestir í gær: 9
Samtals flettingar: 2577617
Samtals gestir: 71422
Tölur uppfærðar: 12.2.2026 03:39:59
www.mbl.is