05.03.2026 22:28

Sólberg ÓF 1 með verðmætasta túr skipsins

                              2917 Sólberg ÓF 1 Löndun á Siglufirði mynd þorgeir Baldursson 

Frystitogarinn Sólberg ÓF kom til hafnar á Akureyri þriðjudaginn 3. mars eftir feikilega góðan túr. Aflinn var 1.090 tonn en uppistaðan var að mestu þorskur og ýsa.

Einar Númason skipstjóri segir í samtali við 200 mílur að þótt aflinn sé ekki sá mesti sem hann hafi séð sé hann þó líkast til með þeim verðmætari.

Aflaverðmæti allt að 940 milljónir

„Nei, þetta er ekki það mesta sem við höfum fengið en þetta var tiltölulega stuttur túr, 29 dagar höfn í höfn,” segir Einar og bætir við að aflaverðmætið sé sambærilegt við það mesta á Sólbergi. „En það voru 1.400 tonn á bak við það.“

Einar áætlar að aflaverðmætið sé á bilinu 930-940 milljónir og ljóst er að menn megi vel við una eftir túrinn. „Já, þetta eru góð laun, það fer ekkert á milli mála. Menn eru mjög sáttir, bæði útgerð og áhöfn,“ segir hann. „En þetta hefst ekkert nema með góðri áhöfn og veiðiheimildum.“

Einar Númason í skipstjórastólnum.

Einar Númason í skipstjórastólnum. mbl.is/Þorgeir

Einar segir að í túrnum hafi verið veitt á Vestfjarðamiðum. Byrjað var að veiða á Strandagrunni þar sem Einar segir að þorskveiðin hafi verið góð en veðrið öllu verra. Þá hafi ágætis reytingur verið í Þverálnum og á Barðagrunni hafi verið góð ýsuveiði en líka nokkuð af þorski.

Túrnum lauk í Víkurálnum þar sem Einar segir að bæði ýsu- og þorskveiði hafi verið mjög góð. „Það kom svona dagur og dagur þar sem var leiðindaveður en við gátum alltaf verið að,“ segir Einar.

                                      oliutaka i Krossanesi og Mjölinu landað mynd þorgeir Baldursson 2026

Með aflahæstu skipum

Sem fyrr segir bar Sólberg fyrst að höfn á Akureyri þar sem fiskimjöli er landað og olía tekin. Að því búnu var haldið til Siglufjarðar þar sem frosnum afurðum var landað í gær. Að sögn Einars hélt Sólberg aftur á miðin um tíuleytið í gærkveldi.

Sólberg hefur lengi verið með fengsælustu skipum íslenska skipaflotans og hefur oftar en einu sinni ratað á lista yfir aflahæstu skipin. Við upphaf fiskveiðiársins fékk skipið úthlutað mesta aflamarkið, eða 10.430 þorskígildistonn. Fast á hæla þess fylgdi Guðmundur í Nesi RE með 9.109 tonn og Drangey SK með 6.442 tonn.

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 653
Gestir í dag: 8
Flettingar í gær: 1901
Gestir í gær: 20
Samtals flettingar: 2658989
Samtals gestir: 71937
Tölur uppfærðar: 6.3.2026 03:53:38
www.mbl.is