15.03.2026 23:20

Lúxushótel við Grenivik

                           Lúxushótelið á höfðanum við Grenivik  Mynd þorgeir Baldursson 2026 

Verktakar eru nú að störfum við lúxushótelið Höfða Lodge við Grenivík. Greint var frá því á dögunum að breski auðmaðurinn Russ DeLeon hefði eignast hótelið að fullu eftir að Íslendingar seldu hlut sinn í félaginu. Menn á hans vegum eru væntanlegir til landsins í næstu viku og þá má búast við að framkvæmdir fari á fullt á ný.

„Herbergin komu tilbúin en það er eftir vinna við sameiginlegu rýmin, eldhús, anddyri og fleira. Þá á eftir að koma upp kerfum og vinna að tengingum. Ég tel að það séu svona 10-20% af verkinu eftir,“ segir Þröstur Friðfinnsson, sveitarstjóri Grýtubakkahrepps.

„Þetta er stór og mikil bygging og allt tekur sinn tíma. Ég held þó að planið sé að klára á þessu ári,

hvort sem þeir ná að opna í haust eða síðar,“ segir hann enn fremur.

                        útsýnið yfir Eyjafjörðinn er frábært þegar allt verður tilbúið mynd þorgeir Baldursson 

Miklar tafir síðustu ár

Eins og komið hefur fram í Morgunblaðinu hafa miklar tafir verið við byggingu hótelsins, en upphaflega var stefnt að opnun árið 2023. Kostnaður fór langt fram úr áætlunum fyrri eigenda.

Hótelið er byggt á Þengilhöfða skammt frá Grenivík. Útsýni er yfir Eyjafjörðinn frá herbergjum hótelsins, sem verður 6.000 fermetrar að flatarmáli, með 42 herbergjum og 28 starfsmannaherbergjum.

              Hótelið er byggt á Þenglahöfða með stórbrotnu útsýni yfir Eyjafjörðinn mynd þorgeir Baldursson

 

„Staðurinn er alveg magnaður. Ég hef farið upp eftir með fólki frá mörgum löndum, á öllum tímum árs og í öllum veðrum, og það verða allir jafn dolfallnir yfir staðnum. Ég held að þetta hótel geti orðið vinsælt,“ segir sveitarstjórinn.

                           Hótelið er samsett út fullbúnum einingum mynd þorgeir Baldursson 

                                     Þorpið á Grenivik en þar búa um 300 manns mynd þorgeir Baldursson 

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 729
Gestir í dag: 1
Flettingar í gær: 2338
Gestir í gær: 17
Samtals flettingar: 2704357
Samtals gestir: 72071
Tölur uppfærðar: 16.3.2026 03:30:21
www.mbl.is