17.03.2026 22:31

Flotinn þrifinn að aflokinni loðnuvertíð

Börkur NK þrifinn hátt og lágt að aflokinni loðnuvertíð. Myndir/Björn Steinbekk

 

Að aflokinni loðnuvertíð er það fastur liður að þrífa skip hátt og lágt. Nú þegar loðnuvertíð er að ljúka má sjá áhafnir loðnuskipanna við þrifastörfin og þá er spúlað og skrúbbað af miklum krafti. Það er ekki nóg með að lestar og dekk fái að finna fyrir hreinsiefnum og vatni heldur er allt skipið þrifið af nákvæmni.

Þegar Börkur NK hafði lokið loðnuveiðum á dögunum tók áhöfnin til óspilltra málanna við þrifin. Skipið lá í höfn í Neskaupstað og vatnsgusurnar þyrluðust upp af því þegar farið var að hreinsa ofan dekks.

Skipverjar fóru um með háþrýstispúla og skrúbba af öllu tagi og virtust njóta sín vel við hreinsunarstörfin. Björn Steinbekk ljósmyndari átti leið hjá og smellti af nokkrum myndum sem gefa góð mynd af þrifum á loðnuskipi að vertíð lokinni. Víst er að skipin munu halda hrein og fín á miðin þegar kolmunnaveiðar hefjast, en þær eru næst á dagskrá uppsjávarveiðiskipanna.

 

Það er spúlað og skrúbbað til að undirbúa fyrir veiðar á kolmunna.

               Leifur Þormóðsson Stýrimaður Það er spúlað og skrúbbað til að undirbúa fyrir veiðar á kolmunna.

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 529
Gestir í dag: 12
Flettingar í gær: 2923
Gestir í gær: 82
Samtals flettingar: 2710854
Samtals gestir: 72177
Tölur uppfærðar: 18.3.2026 04:05:13
www.mbl.is