23.03.2026 21:47

Varðskipið Freyja heldur austur á firði

                          3011 Varðskipið Freyja á Eyjafirði i gær 22 mars mynd þorgeir Baldursson 

Varðskipið Freyja stefnir nú í átt að Austfjörðum þar sem óvissustig er í gildi vegna snjóflóðahættu. Á Seyðisfirði er hættustig í gildi og hafa fimm svæði í bænum verið rýmd. 

Í svari Ásgeirs Erlendssonar upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar segir að á þriðja tímanum í dag hafi lögreglan óskað eftir því að skipið yrði til taks á Austfjörðum vegna snjóflóðahættu.

Skipið var þá í Eyjafirði og hélt strax af stað. Gert er ráð fyrir að það verði komið á Seyðisfjörð um hádegi á morgun.

                                     3011 Varðskipið Freyja mynd þorgeir Baldursson 

                                                   Varskipið Freyja á fullri ferð á Eyjafirði mynd þorgeir Baldursson 

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 1141
Gestir í dag: 1
Flettingar í gær: 2839
Gestir í gær: 8
Samtals flettingar: 2795321
Samtals gestir: 72576
Tölur uppfærðar: 13.4.2026 08:36:25
www.mbl.is