|
Snekkjan á leið út Eyjafjörð i morgun 30 mars mynd þorgeir Baldursson
Snekkja auðmannsins Olegs Tinkov, La Datcha, siglir nú út Eyjafjörð og er á leið út fyrir 12 mílna landhelgi Íslands.
Á opinberum kortagögnum má sjá að hún heldur nú til Nuuk, höfuðborgar Grænlands.
Snekkjan siglir undir fána Panama en við skoðun Landhelgisgæslunnar kom í ljós að skipið sigldi undir rússneskum fána frá apríl 2021 til september 2022.
Henni var því upphaflega meinaður aðgangur að höfninni á Akureyri vegna þvingunaraðgerða gegn Rússum en var veitt undanþága síðustu helgi til að leggja að bryggju af öryggisástæðum.

Fengu olíu og vistir
„Af öryggisástæðum var samþykkt að snekkjan fengi að taka olíu og vistir. Með þeim hætti var best hægt að tryggja að hún gæti haldið frá Íslandi með öruggum hætti,“ sagði Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, við mbl.is síðasta föstudag.
Oleg Tinkov, eigandi snekkjunnar, er einn þeirra rússnesku auðmanna sem hvað mest hafa gagnrýnt rússnesk stjórnvöld vegna stríðsins í Úkraínu.
Hann afsalaði sér rússnesku ríkisfangi sínu eftir að hafa lent upp á kant við stjórnvöld.

|