07.04.2026 20:35

Haldið til kolmunnaveiða

                         Vilhelm Þorsteinsson EA 11 á leið á Kolmunnaveðar mynd þorgeir Baldursson 

Vilhelm þorsteinsson EA ,Aðalsteinn Jónsson SU , Jón Kjartansson SU, Hoffell SU. 

 héldu einnig af stað i dag  áleiðis á kolmunnamiðin við Færeyjar 

Síldarvinnsluskipin Barði NK, Beitir NK og Börkur NK munu halda til kolmunnaveiða í dag. Heimasíðan ræddi við Theodór Haraldsson skipstjóra á Barða og spurði hvernig mönnum litist á veiðarnar. “Mér líst vel á þær. Við munum halda til veiða um hádegi í dag og verðum væntanlega komnir á miðin að lokinni viðkomu í Færeyjum annað kvöld. Veiðin mun eiga sér stað á hinu svonefnda gráa svæði syðst í færeysku lögsögunni en þangað er fiskurinn að ganga úr írsku lögsögunni. Síðustu árin hefur þarna hafist kraftveiði um þetta leyti og hafa skipin verið að fá allt upp í 100 tonn á tímann. Í fyrra hófst veiðin þarna 6. – 10. apríl og gekk afar vel. Ég held að íslensku kolmunnaskipin séu yfirleitt að leggja af stað á miðin um þetta leyti og menn eigi von á góðri veiði,” sagði Theodór.

Í fyrra barst fyrsti kolmunnafarmurinn á þessum árstíma til Neskaupstaðar þann 8. apríl en þá kom Börkur NK þangað með fullfermi eða 3.250 tonn sem fengust í sex holum á tveimur og hálfum sólarhring á gráa svæðinu.

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 996
Gestir í dag: 3
Flettingar í gær: 1832
Gestir í gær: 6
Samtals flettingar: 2780758
Samtals gestir: 72514
Tölur uppfærðar: 8.4.2026 03:30:00
www.mbl.is