| Flokkur: Linubátar18.03.2010 22:35Tjaldur SH 270 ný vinnslulinaTjaldur SH 270 ©Mynd þorgeir Baldursson Aðgerðar aðstaðan um borð i Tjaldi © mynd Fiskifréttir Nýtt vinnslukerfi um borð í Tjaldi SH 
 
 Snigiltankar tryggja rétta og jafna meðhöndlun 
 Nýtt vinnslukerfi var sett upp í beitningarvélabátnum Tjaldi SH milli jóla og nýárs. Kerfið kemur frá 3X Technology. Búnaðurinn er hannaður fyrir vinnslu á línuveiddum fiski og tryggir að allur fiskur fái rétta og jafna meðhöndlun í gegnum vinnslukerfið. Snigiltankar sjá um að það hráefni sem fer fyrst inn í þá er það sem kemur fyrst út úr þeim. Hámarksafköst kerfisins eru 1.500 kg á klst. Blóðgunarkar og kælikar hafa bæði stjórnskáp þar sem hægt er að festa inni tiltekna blóðgunar- og kælitíma (snúningshraði snigla). Kæling alla leið Mögulegt er að safna allt að 3.500 kg af fiski í kælikarið ef þannig stendur á. Með þessu er tryggt að fiskurinn kælist um leið og búið er að slægja hann og hefur það afgerandi áhrif á endanleg gæði. Kælikarið er tengt við krapaískerfi sem er um borð. Kælitanknum er stýrt með hitamælingum sem ráða innflæði kælimiðils. Í kerfinu eru færibönd og með þeim stjórnskápur. Einnig er þrískipt meðaflakar og aðstaða til slægingar á þremur stórum slægingarborðum. Snigilkör eru rafdrifin og eru ræst frá einum stað í skipinu. Blæfallegri fiskur ,,Vinnslulínan sem fyrir var í skipinu var barn síns tíma og fullnægði ekki kröfum okkar í dag. Það var því kominn tími á endurbætur," sagði Hjálmar Kristjánsson framkvæmdastjóri KG fiskverkunar ehf. sem gerir Tjald SH út, í samtali við Fiskifréttir. ,,Mér leist sérstaklega vel á hugmyndina að snigilkarinu. Sá fiskur sem fer fyrstur inn kemur fyrstur út. Með því er hægt stjórna hraða fisksins í gegnum kerfið og kælingu hans mjög nákvæmlega," sagði Hjálmar. Hann bætti því við að vinnuaðstaðan um borð hefði einnig batnað til mikilla muna.,,Vinnslukerfið hefur verið í notkun í nokkrar vikur og reynslan af því er mjög góð. Við sjáum mun á því að fiskurinn er blæfallegri og við ráðum betur við að stýra hitastiginu í honum," sagði Hjálmar Heimild Fiskifréttir Kjartan Skrifað af Þorgeir 
 | Eldra efni 
 Um mig Nafn:Þorgeir Baldursson Farsími:8620479 Tölvupóstfang:thorgeirbald62@gmail.com Heimilisfang:Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð Staðsetning:Hörgárbyggð Um:Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi Tenglar
 Flettingar í dag: 7662 Gestir í dag: 44 Flettingar í gær: 12812 Gestir í gær: 70 Samtals flettingar: 2252949 Samtals gestir: 69024 Tölur uppfærðar: 31.10.2025 22:53:27 | 
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is