| Flokkur: Trefjar29.06.2012 15:06Ný 15tonna Cleopatra 40B afgreidd á Bolungarvík                      2822-Hrólfur Einarsson Is 255 © mynd Högni Bergþórssson 2012 Útgerðarfélagið Völusteinn ehf á Bolungarvík fékk nú á dögunum afhentann nýjan Cleopatra bát frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði. Að útgerðinni standa Gunnar Torfason og Ólafur Jens Daðason.  Ólafur Jens Daðason verður skipstjóri á bátnum. Nýji báturinn hefur hlotið nafnið Hrólfur Einarsson ÍS 255.  Báturinn mun leysa af hólmi eldri Cleopatra 38 bát með sama nafni.  Báturinn mælist 15brúttótonn og er í krókaaflamarkskerfinu.  Hrólfur Einarsson er af nýrri gerð Cleopatra 40B sem er nokkru breiðari bátur enn eldri bátar útgerðarinnar. Aðalvél bátsins er af gerðinni Isuzu 6WG1TCX 720hö (15.7L) tengd tveggja hraða gír ZF 550ATS gír.  Nýjung í þessum bát er að gírinn hefur innbyggð tvö gírhlutföll.  Efra hlutfallið er notað með léttann bát út á miðinn og neðra hlutfallið með hlaðinn bát til hafnar. Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni JRC frá Sónar ehf. Báturinn er einnig útbúin með vökvadrifnum Wesmar hliðarskrúfum að framan og aftan sem tengdar eru sjálfstýringu bátsins.  Báturinn er útbúinn til línuveiða.  Línuspil er frá Beiti ehf og annar búnaður til línuveiða frá Stálorku ehf. Öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking. Rými er fyrir 16stk 660lítra kör í lest. Í bátnum er innangeng upphituð stakkageymsla. Borðsalur er í brúnni auk stóla fyrir skipstjóra og háseta. Svefnpláss er fyrir fjóra í lúkar auk eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofn og ísskáp. Heimild Trefjar .is Skrifað af Þorgeir 
 | Eldra efni 
 Um mig Nafn:Þorgeir Baldursson Farsími:8620479 Tölvupóstfang:thorgeirbald62@gmail.com Heimilisfang:Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð Staðsetning:Hörgárbyggð Um:Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi Tenglar
 Flettingar í dag: 7491 Gestir í dag: 50 Flettingar í gær: 1855 Gestir í gær: 45 Samtals flettingar: 2239966 Samtals gestir: 68960 Tölur uppfærðar: 30.10.2025 16:50:27 | 
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is