Færslur: 2011 Janúar31.01.2011 17:12Loðnu veiðar um borð i Jónu Eðvalds SF 200Jóna Eðvalds SF 200 © mynd Þorgeir Baldursson Loðnuveiðar 2011© Mynd Svafar Gestsson 2011 Jökull og Kiddi © mynd Svafar Gestsson 2011 Trollpokinn á siðunni © Mynd Svafar Gestsson 2011 Skipverji á Jónu Eðvalds © Mynd Svafar Gestsson 2011 Hérna kemur smá myndasyrpa sem á Svafar Gestsson Vélstjóri á Jónu Eðvalds SF sendi mér en skipið er nú á landleið með um 500 tonn sem að tekin voru i nót og kann ég honum bestu þakkir fyrir afnotin á myndunum með ósk um áframhaldandi góða veiði Skrifað af Þorgeir 28.01.2011 20:00Loðnuskip með fullfermiHilmir Su © mynd þorgeir Baldursson Arnþór EA 16 © Mynd þorgeir Baldursson Hólmaborg SU 11© mynd þorgeir Baldursson Nokkur loðnuskip á siglingu undir farmi Skrifað af Þorgeir 28.01.2011 19:26Hvaða skip er hér á ferðNú er spurt hvaða skip er þetta og hvar er það gert út i dag Skrifað af Þorgeir 27.01.2011 07:34Simavinir á sjóÚlfar Hauksson © mynd Þorgeir Baldursson 2011 Höskuldur V Jóhannessson © mynd þorgeir Baldursson 2011 svona er island i dag Gemsar og nettengingar um borð i hverri fleytu og ekki hægt að fara frá bryggju nema allt sé klárt mikil er sú breyting að bara geta sent tölvupóst til aðstanenda eða fengið skilaboð að heimann ef að eitthvað bjátar á Skrifað af Þorgeir 26.01.2011 19:37Leikur að birtuSiglt út Eyjafjörð © Mynd þorgeir Baldursson 2011 Horft inn Eyjafjörðinn © mynd þorgeir Baldursson Það eru oft skemmtileg birtu skilyrði sem að myndast seinni part dags þegar rökkva tekur og þá nást svona skemmtilegar myndir hérna er Sólbakur EA 1 á útleið i vikunni Skrifað af Þorgeir 25.01.2011 19:502710- Bliki EA 12 á Eyjafirði2710- Bliki EA 12 © Mynd þorgeir Baldursson 2011 Bliki Ea var á siglinu á Eyjafirði um kl 17 i dag á leið til Akureyrar þegar myndin er tekin enda var orðið dimmt en með þvi að hækka iso stillinguna var hægt að föndra svolitið við hana og svo kemur mynd af honum sem að er tekin 2009 á Dalvik er bara þokkalega sáttur við þær Bliki EA 12 © mynd þorgeir Baldursson 2009 Skrifað af Þorgeir 23.01.2011 07:136874-Friður EA 54 á siglingu á Eyjafirði6874-Friður EA 54 © mynd þorgeir Baldursson 2010 Friður EA 54 © Mynd þorgeir Baldursson 2010 Friður EA © Mynd þorgeir Baldursson 2010 Hún er glæsileg Friðan hans Bjarna Bjarnassonar eftir lenginu hjá Baldri á Hliðarenda það eru nú talsverð annað að fara af Súlunni EA 300 sem að gekk rúmar 10 milur og niður á litinn smábát sem að gengur 26-28 milur á klukkustund hvað finnst ykkur lesendur góðir mér finnst báturinn samsvara sér mjög vel eftir þessar breytingar Skrifað af Þorgeir 22.01.2011 19:13Kælismiðjan Frost setur nýtt frystikerfi i norskan togaralaugardagur 22.jan.11 14:56
Togarinn Havtind sem norska fyrirtækið keypti frá Grænlandi. Hérna koma upplýsinar um skipið og fyrri nöfn Vessel's DetailsShip Type: FishingYear Built: 1997 Length x Breadth: 60 m X 13 m DeadWeight: 700 t Speed recorded (Max / Average): 13.8 / 12.1 knots Flag: Norway [NO] Call Sign: LCMP IMO: 9164304, MMSI: 259707000
Kælismiðjan Frost hefur samið um uppsetningu á
nýju frystikerfi í togarann Havtind, sem norska útgerðarfyrirtækið
Norland Havfiske var að
kaupa frá Grænlandi. Áður hafði Frost selt allan búnað til verksins.
Núverandi freonkerfi R22 verður skipt út og nýtt
ammoníakskerfi sett í þess stað. Guðmundur Hannesson sölu- og markaðsstjóri Kælismiðjunnar Frosts segir að togarinn hafi stundað rækjuveiðar en fari til bolfiskveiða eftir breytingarnar. Hann segir að þetta nýja kerfi afkasti 65-70 tonnum í heilfrystingu á sólarhring. Verkið verður unnið á Akureyri og er skipið væntanlegt til Akureyrar í næstu viku en áætlað er að því ljúki í byrjun maí. Havtind er annar togarinn sem Frost breytir fyrir þessa norsku aðila og þriðji norski togarinn sem Frost breytir á einu ári. Auk nýs frystikerfis og frysta verða gerðar ýmsar lagfæringar og breytingar á skipinu. Einnig koma að þessu verki Slippurinn Akureyri, Rafeyri og 3X-stál á Ísafirði. Það verður því mikill fjöldi manna við vinnu í skipinu á Akureyri næstu mánuði en Guðmundur segir að heildarkostnaður við verkið sé um 370 milljónir króna. Guðmundur segir að verkefnastaðan hjá Frost sé mjög góð en að þetta verkefni skipti fyrirtækið miklu máli í vetur. "Það er alveg ljóst að á meðan ríkisstjórnin ætlar að halda íslenskum sjávarútvegi í gíslingu, þá skapast fá verkefni hér innanlands. Við köllum eftir því að þeir sem hér stjórna, axli sína ábyrgð og fari að gera eitthvað. Þótt verkefnastaðan hjá okkur sé góð um þessar mundir er staðan almennt í landinu mjög léleg og það eru mörg fyrirtæki sem þjást vegna ástandsins. Það vantar ekki peninga í sjávarútveginn hér heima en á meðan þessi óvissa ríkir, halda menn að sér höndum. Við munum því halda áfram að reyna ná í enn fleiri erlend verkefni," segir Guðmundur. Heimild Vikudagur.is Skrifað af Þorgeir 20.01.2011 16:11Sveinn EA 2046645-Sveinn EA 204 © Mynd þorgeir Baldursson 2011 Stórvinur minn Hannes Kristjánsson var á veiðum á báti þeirra feðga Sveini EA á Eyjafirðinum þegar við létum úr höfn siðastliðin þriðjudag en Hannes er skipstjóri á Odru ex Guðbjörg sem að dótturfyrirtæki Samherja gerir út það er talsverður stærðarmunur á þessum tveimur skipum annað um 3000 tonn og hinn um það bil 10 tonn en kallinum munar nú ekki mikið um það að stjórna þessum fleytum enda hagvanur á heimslóðinni Skrifað af Þorgeir 17.01.2011 22:17Vilhelm þorsteinsson EA 11 Flaggskip Samherja H/F Vilhelm Þorsteinsson EA 11 kom nú i kvöld til hafnar á Seyðisfirði með góðan afla alls um 1850 tonn af loðnu og voru um 48-50 stk i kilóinu Skrifað af Þorgeir 16.01.2011 21:56Norsk loðnuskip á vertið 2011Umþað bil 6 norsk loðnuskip eru nú að veiðum norður úr Langanesi og veiðin verið þokkaleg talvert að sjá en ekki skilað sér eins vel aftur i pokann hérna koma myndir af þeim skipum sem að erum á veiðum þarna og voru þær fengnar af Ais staðsetningar búnaði sem að er hér til hægri á heimasiðunni Skrifað af Þorgeir 16.01.2011 00:28Faxi RE 9 Faxi RE 9 © Mynd Þorgeir Baldursson Faxi RE 9 á útleið frá Vopnafirði en skipið er i eigu Granda H/f og stundar Loðnu sild og makrilveiðar og landar oftast á Vopnafirði Skrifað af Þorgeir 14.01.2011 18:44Nýr vefur Fiskifrétta opnaður i dagFiskifréttir opnuðu i dag nýjan og endurbættan vef um sjávarútvegsmál slóðin er www.fiskifrettir.vb.is og munu þar koma fram nýjar og ferskar fréttir af veiðum og vinnslu i sjávarútvegi Skrifað af Þorgeir 14.01.2011 14:09Aflaverðmætismet / IslandsmetKlakkur SH 510 © Mynd þorgeir Baldursson Klakkur SH 510 var með mest aflaverðmæti isfisktogara 2010 1.155.000.000 sem að mun vera Islandsmet aflinn var 5.287 tonn 38 skip fiskuðu fyrir meira en milljarð Að minnsta kosti 38 íslensk skip fiskuðu fyrir meira en milljarð króna á nýliðnu ári, samkvæmt samantekt Fiskifrétta, og hafa þau aldrei orðið fleiri á einu ári. Til samanburðar má nefna að árið 2009 náðu 28 skip þessu marki. Sjö skip veiddu fyrir meira en tvo milljarða króna á árinu 2010, þar af komst eitt þeirra, Vilhelm Þorsteinsson EA, yfir þrjá milljarða sem er einstakur árangur. Hin skipin sem fiskuðu fyrir meira en tvo milljarða voru Guðmundur í Nesi RE, Guðmundur VE, Huginn VE, Aðalsteinn Jónsson SU, Kleifaberg ÓF og Arnar HU. Um er að ræða fjögur uppsjávarskip og þrjá botnfiskfrystitogara. Alls ellefu uppsjávarskip voru með meira en milljarð í aflaverðmæti á liðnu ári eða næstum helmingi fleiri en árið á undan. Sérstaka athygli vekur að Börkur NK, sem ekki vinnur afla sinn um borð, fiskaði fyrir 1.915 milljónir. Þá bar það til tíðinda að þrír ísfisktogarar komust yfir einn milljarð í aflaverðmæti, Klakkur SH, Sólbakur EA og Björgúlfur EA. Sjá nánar í Fiskifréttum lista yfir öll skipin sem komust yfir milljarð í aflaverðmæti 2010 Skrifað af Þorgeir
|
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning: HörgárbyggðUm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 3572 Gestir í dag: 61 Flettingar í gær: 1455 Gestir í gær: 74 Samtals flettingar: 994993 Samtals gestir: 48568 Tölur uppfærðar: 21.11.2024 14:07:43 |
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is