Færslur: 2011 Nóvember29.11.2011 23:07Norðurljósin Séð i gegnum NætursjónaukaNorðurljósin séð í gegnum nætursjónaukaÞriðjudagur 29. nóvember 2011 Þegar skyggja tekur á haustin taka við hjá þyrluáhöfnum Landhelgisgæslunnar reglulegar kvöld- og næturæfingar með og án nætursjónauka. Þessar æfingar eru hluti af reglubundinni þjálfun hjá flugdeildinni og eru mjög mikilvægur undirbúningur fyrir veturinn og skammdegið. Nætursjónaukar hafa þann eiginleika að magna margfalt upp alla birtu. Þegar horft er í gegn um þá í myrkri er það svipað og sjá í dagsbirtu. Sjá má minnstu ljóstýru langar leiðir. Þetta gerir þyrluáhöfnum kleift að fljúga við aðstæður sem annars væru óhugsandi. Þetta þarf að hafa í huga við björgunaraðgerðir þegar þyrlan kemur á vettvang í myrkri. Þá þarf að lágmarka alla birtu á staðnum til að hægt sé fyrir þyrluáhöfnina að athafna sig með nætursjónaukum. Þyrlur Landhelgisgæslunnar, TF-LIF og TF-GNA eru báðar eru með nætursjónaukabúnað sem hefur gerbreytt starfsumhverfi og möguleikum þyrluáhafna til að sinna starfi sínu að nóttu til. Að nota nætursjónauka er vissulega mjög ólíkt því að vinna i dagsbirtu. Sjónsvið við notkun þeirra er aðeins 40 gráður sem líkja má við það að horfa í gegnum klósettrúllu. Einnig nýtast nætursjónaukar ekki við aðstæður þar sem ekki er tunglsljós og alskýjað, þar sem þá er ekkert ljós til að magna upp. Einnig hefur græni liturinn þau áhrif að dýptarskyn minnkar. Er því mjög mikilvægt að vera í góðri þjálfun við notkun þeirra. Þessi glæsilega mynd af Norðurljósunum var tekin af áhöfn TF-LIF, í gegnum nætursjónauka, þegar þyrlan var í þriggja kílómetra hæð yfir norðurenda Langjökuls um kl. 23:30 þann 28. nóvember. Heimild Landhelgisgæslan www.lhg.is Skrifað af Þorgeir 29.11.2011 09:39Akureyri i morgun vetrarmyndir Slæmt skyggni i morgunsárið © mynd Þorgeir 2011 Krossanesbraut © mynd Þorgeir 2011 Kristina EA 410 © mynd Þorgeir 2011 Hafnsögubáturinn Sleipnir © mynd Þorgeir 2011 Aðstoðar við að festa rannsóknarskipið Poseinon við Bryggju © mynd Þorgeir Kaldbakur EA 1 við Bryggju © mynd Þorgeir 2011 Árbakur Ea 5 og Alpha HF 32 © mynd þorgeir 2011 Jólatréð á Ráðhústorgi © mynd þorgeir 2011 Víkurskarðið er enn lokað, þar er flutningarbíll fastur. Eins loka snjóflóð Ólafsfjarðarmúla, ófært er milli Akureyrar og Dalvíkur og eins milli Akureyrar og Grenivíkur og beðið er með mokstur, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Austan Víkurskarðs er víða stórhríð og hálka. Á Austurlandi er hálka eða snjóþekja á flestum leiðum, Þæfingsfærð og skafrenningur er á Öxi. Á Vesturlandi er snjóþekja og skafrenningur á Bröttubrekku og snjóþekja og stórhríð á Holtavörðuheiði. Annars er víða hálka eða snjóþekja og skafrenningur. Á Vestfjörðum er Ófært og beðið er með mokstur á Steingrímsfjarðarheiði og á Kettshálsi og þungfært og skafrenningur í Ísafjarðardjúpi og á Kleifarheiði. Snjóþekja og stórhríð er á Gemlufallsheiði. Á Norðvesturlandi stórhríð og hálka við Gauksmýri, ófært og mokstur í gangi á Þverárfjalli. Þæfingsfærð og mokstur í gangi á Vatnsskarði, Þæfingsfærð og stórhríð er á milli Sauðárkróks og Hofsós og stórhríð og ófært á Siglufjarðarvegi. Það eru hálkublettir á Hellisheiði og í Þrengslum. Hálka, hálkublettir eða snjóþekja er á Suðurlandi og Reykjanesi. Á Suðausturlandi er víða hálka. Heimild vikudagur.is Skrifað af Þorgeir 28.11.2011 23:282400-Hafdis SU 220 Hafdis i öldudal við Norðfjarðarhornið © mynd Þorgeir 2011 Lyftist á Bárunni © mynd þorgeir 2011 Millibólið tekið © mynd þorgeir 2011 og baujan að koma © mynd þorgeir 2011 Klárað að draga linuna © þorgeir2011 Og sett á landstim © mynd þorgeir 2011 Ekki fer miklum sögum af aflabrögðum hjá þennan dag en kanski kemur einhver hérna inn sem að getur sagt okkur afla bátsins þar sem af er árinu og vil ég nefna helstan til sögunnar Gisla Reynisson sem að heldur úti siðunni www.aflafrettir.com þar sem að er að finna griðarlega mikið magn af löndunum mörg ár aftur i timann Skrifað af Þorgeir 28.11.2011 14:45Góð aðsókn við að skoða Þór á Akureyri Varðskipið Þór og Frosti þH við bryggju i morgun © þorgeir 2011 Stórt og tignarlegt © mynd þorgeir 2011 Gestir streymdu um borð til að skoða © mynd þorgeir 2011 Mart að sjá og vöktu springer bátarnir mikla athygli © mynd þorgeir 2011 Úr brúnni i morgun © mynd Kristján Vikudagur Páll Geirdal Yfirstýrimaður sýnir gestum stjórntæki i brú © mynd Kristján vikudagur Varðskipið Þór verður til sýnis á Akureyri í dag og á morgun en skipið lagðist að Oddeyrarbryggju í morgun, eins og fram kemur hér neðar á síðunni. Almenningi gefst kostur á að skoða skipið frá kl. 13:00-18:00 og á morgun þriðjudaginn 29. nóvember frá kl. 10:00-12:00 og 13:00-17:00. Sýslumaðurinn á Akureyri, lögreglumenn, sjúkraflutninga- og slökkviliðsmenn, sem og björgunarsveitarmenn fengu forskot á sæluna og skoðuðu skipið í morgun. Það voru þeir Sigurður Steinar Ketilsson skipherra og Páll Geirdal yfirstýrimaður sem sýndu skipið.Þokkaleg aðsökn hefur verið i dag og hefur allt gengið vel að sögn skipverja heimild Vikudagur.is Skrifað af Þorgeir 27.11.2011 23:10Varðskipið Þór til sýnis á Akureyri Varðskipið Þór © mynd Þorgeir Baldursson 2011 Varðskipið Þór er væntanlegt til Akureyrar á mánudagsmorgun og er áætlað að skipið verði opið til sýnis við Oddeyrarbryggju á morgun frá kl. 13:00-18:00 og þriðjudaginn 29. nóvember frá kl. 10:00-12:00 og 13:00-17:00. Skrifað af Þorgeir 27.11.2011 15:18Nokkur skip á sjó i haust Viking M0337 Rússi Ex Ólafur Jónsson GK © Mynd þorgeir 2011 Aquamarine M-0272 Rússi © Mynd þorgeir Baldursson 2011 Nordstar M-30-G AAlasund Norge © mynd þorgeir Baldursson 2011 Kiel Nc 105 Cuxhaven © Mynd Þorgeir Baldursson 2011 Skrifað af Þorgeir 24.11.2011 22:492288 Pétur Jónsson RE 69 á Flæmska Hatti Pétur Jónsson RE 69 © mynd Þorgeir Baldursson 2288-Pétur Jónsson RE 69 © mynd Canadiska Strandgæslan Skrifað af Þorgeir 23.11.2011 23:30Rannsóknarskip á Heimleið 2266- Rannsóknarskipið Neptune EA 41 © mynd þorgeir Baldursson 2010 1412-Rannsóknarskipið Poseidon EA 303 © Mynd þorgeir Baldurssson 2010 Rannsóknarskipin munu vera við bryggju á Akureyri i fyrramálið en þau munu bæði að vera að koma úr verkefnum erlendis þar sem að þau hafa verið að kortleggja hafsbotnin þar sem að leggja þarf gas eða oliu lagnir og er búnaður þessara tveggja skipa með þvi allra fullkomnasta sem að til er i dag og eftirspurn eftir svona skipum talverð vegna þess að i þeim er búnaður sem að getur haldið þeim allveg á sama puntinum Skrifað af Þorgeir 23.11.2011 14:19Þór i slipp á Akureyri Þór á Eyjafirði i morgun © mynd þorgeir Baldursson 2011 Á leið i Flotkvina © mynd þorgeir Baldursson 2011 Kominn Hálfa Leið © mynd þorgeir Baldursson 2011 Kominn upp © mynd þorgeir Baldursson 2011 Nýja varðskipið Þór kom til Akureyrar í dag og var skipinu siglt beint í flotkví Slippsins, þar sem gera þarf örlitlar lagfæringar á botni þess. Þegar kafarar gæslunnar köfuðu undir skipið við bryggju í Reykjavík kom í ljós að boltar sem halda grindum fyrir sjóinntöku voru lausir. Herða á þessa bolta og jafnvel skipta um þá. Varðskipið er í eins árs ábyrgð hjá skipasmiðastöð þess og allur kostnaður sem af þessu hlýst fellur á hana. Heimild Vikudagur.is Kristján Skrifað af Þorgeir 22.11.2011 15:28Óvænt Heimsókn Góður gestur i heimsókn © mynd þorgeir 2011 Það eru stundum skemmtileg augnablik til sjós þessi litli fugl kom i heimsókn til okkar um borð i varðskipið Týr þegar skipið var við eftirlit á Flæmska Hattinum i lok sepember og undi sér vel á handarbaki eins eftirlitsmansins skamma stund Skrifað af Þorgeir 17.11.2011 19:40Nýtt skip Til Isafjarðar Borgin KL 717 sem að mun fá nafnið Isbjörn is © mynd þorgeir Baldursson Nýr skuttogari bætist í skipaflota Ísfirðinga innan tíðar. "Ég var að skrifa undir kaup á 1000 tonna skuttogara. Næsta mál er að setja skipið í slipp fyrir sunnan og gera það sjófært og vonir standa til að það komist á veiðar um miðjan janúar," segir Jón Guðbjartsson stjórnarformaður rækjuvinnslunnar Kampa og eigandi útgerðarfélagsins Birnis sem standa sameiginlega að kaupum skipsins. "Þetta er skip sem við vonumst til að fiski eitt til tvö þúsund tonn af rækju á ári hér og þar. Það verður skráð á Íslandi og verður gert út frá Ísafirði. Það kemur til með að heita Ísbjörn," segir Jón. Aðspurður um hversu mikil áhrif þetta muni hafa fyrir rækjuvinnsluna segir hann: "Þetta mun laga öflunarstöðu Kampa um 20-25% þannig að við þurfum að kaupa minna hráefni." Þá muni koma skipsins einnig skapa störf. "Yfirleitt á svona skipi sem er úti þrjár vikur í senn eru tvær áhafnir þannig að! við sjáum fram á þarna verði 22-24 störf í framtíðinni." Heimild www.bb.is Það var skipasalan Alasund sem að sá um söluna www.alasund.is Skrifað af Þorgeir 16.11.2011 19:06Túr Með Beitir Nk 123 Neminn settur á © mynd þorgeir Baldursson 2011 Kristinn Snæbjörnsson og Höfulinustykkið © mynd þorgeir Baldursson 2011 Belgjunum lásað á © mynd Þorgeir Baldursson 2011 Trollið látið fara © mynd þorgeir Baldursson 2011 Hlerunum slakað © mynd þorgeir Baldursson 2011 Siðuritari skrapp i sumar einn tveggja daga túr með Beitir Nk 123 og var skipið að fiska Makril ásamt þvi að tekið var talsvert af sild og var aflinn um 650 tonn Sjá viðtal við Sturla Þórðarsson skipstjóra i Fiskifréttum þann 1/9 2011 Skrifað af Þorgeir 14.11.2011 22:19Arctic Svan með mettúr af Grálúðu Arctic Svan © i Tromsö mynd þorgeir Baldursson 2011 Norski togarinn Arctic Swan landaði nýlega 566 tonnum af grálúðu af Grænlandsmiðum og nam aflaverðmætið 19,5 milljónum norskra króna eða jafnvirði 400 milljóna íslenskra króna. Í frétt á vef samtaka norskra útvegsmanna kemur fram að þetta sé mjög nálægt því að vera Metið í uppsjávarflotanum á hins vegar Selvåg senior sem fékk 11 milljónir norskra króna eða jafnvirði 226 milljóna íslenskra króna fyrir 850 tonna makrílfarm fyrr í haust en þar var um ferskan afla að ræða. Heimild Fiskifréttir Skrifað af Þorgeir 13.11.2011 13:59Enniberg Tn 180 Enniberg Tn 180 © Mynd þorgeir Baldursson 2011 Enniberg á karfaveiðum i sildarsmugunni fyrr á þessu ári fleiri myndir munu birtast hérna innan skamms og þá væntanlega meiri brælumyndir Skrifað af Þorgeir
|
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning: HörgárbyggðUm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 2546 Gestir í dag: 60 Flettingar í gær: 1455 Gestir í gær: 74 Samtals flettingar: 993967 Samtals gestir: 48567 Tölur uppfærðar: 21.11.2024 13:25:36 |
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is