Færslur: 2019 Ágúst29.08.2019 17:28útgerðarfélag Reykjavikur selur Mars RE 13Nú fyrir skömmu siðan seldi Útgerðarfélag Reykjavikur isfisktogarann Mars RE13 til skipaþjónustu islands og mun skipið verða notað til ýmissa þjónustu verkefna sem að fyrirtækið kemur að það mun ekki verða notað til fiskveiða framar Skipaþjónusta islands hefur séð oliu dælingar i og úr skipum og þjónustað útgerðarmenn með margvislega hluti sem að tengjast útgerðinni og svo er það með nokkra öfluga dráttarbáta sem að sinna allskyns verkefnum tengdum Sjávarútvegi
Skrifað af Þorgeir 28.08.2019 21:36Kapitan Rogozin M0138Þessi Rússneski togari kom til Hafnarfjarðar i morgun og fór aftur seinnipartinn áleiðis á 3M að er veiðsvæði útaf ströndum Nýfundalands svokallað Nafo svæði þar hafa rússar og portugalar verið að veiða grálúðu i talsverðu magni en hún mun vera fremur smá
Skrifað af Þorgeir 28.08.2019 20:45Frá Öngli til Maga
Á hverju hausti sigla Hollvinir Húna II með nemendur 6. bekkjar á Akureyri og Eyjafirði í veiði og fræðsluferðir. Í ferðunum fræðast þau um bátinn Húna II og smíði hans, um lífríki sjávar og hollustu fisksins .Fjallað er um hafið kring um landið og þau verðmæti sem við þurfum að nýta og vernda td. með því að halda hafsvæðinu hreinu. Þau skoða stjórntæki í brú, veiða fisk sem síðan er krufinn, flakaður grillaður og snæddur. Þetta er unnið í samstarfi við Akureyrarbæ, Samherja og Háskólann á Akureyri. Rúmlega 300 nemendur sigla þetta haustið. Áhöfnin á Húna II eru 10 í þessum ferðum og öll vinna unnin í sjálfboðavinnu.og i dag sigldu með Húna nemendur úr Siðuskóla og Brekkuskóla alls um 40 börn skipstjóri á Húna er margreyndur aflaskipstjóri Arngrimur Brynjólfsson sem að var lengi með Vilhelm Þorsteinsson EA11 og Kristinu EA 410 myndir Þorgeir Baldursson og Þorsteinn pétursson
Skrifað af Þorgeir 28.08.2019 20:11Viðurkenning fyrir Góða öryggisvitund
Skrifað af Þorgeir 28.08.2019 08:53Onni HU 36 og Drangey
Skrifað af Þorgeir 27.08.2019 11:21Farsæll SH 33 á inn og útleið á Sunnudaginn
Skrifað af Þorgeir 27.08.2019 11:21Niels Jensen er látinn I Danmörku
Sú sorgarfregn barst frá Hirtshals í Danmörku fyrir nokkrum dögum að Niels Jensen hefði látist hinn 21. ágúst sl. Niels Jensen var íslenskur konsúll í Hirtshals og umboðsmaður íslenskra skipa á síldveiðitímanum í Norðursjónum á árunum 1969-1976. Niels var sannur Íslandsvinur og átti fjölmarga vini og kunningja hér á landi.
Niels Jensen var fæddur í Hirtshals árið 1943, lærður skipamiðlari og stofnaði fyrirtæki í heimabænum árið 1972 ásamt Ove Jørgensen, sem var náinn samstarfsmaður hans. Niels hafði mikil samskipti við Íslendinga á síldveiðitímanum í Norðursjó og lagði sig fram um að læra íslensku með mjög góðum árangri. Margir íslenskir síldarsjómenn frá þessum tíma minnast samskipta við Niels og geta sagt frá því hvernig hann leysti margvísleg mál sem upp komu. „Við verðum að leita til Niels,“ var viðkvæðið þegar upp komu vandamál hjá íslensku síldarsjómönnunum á þessum árum og reglan var sú að Niels leysti hvers manns vanda.
Íslenska og danska fánanum flaggað í hálfa stöng vegna fráfalls Niels Jensen á höfuð-stöðvum útgerðarfélagsins Isafold í Hirtshals. Árið 1973 varð Niels íslenskur konsúll í Hirtshals. Á þeim tíma var Hirtshals helsti síldarbær Íslendinga enda lögðu þá um 60 íslensk skip stund á síldveiðar í Norðursjó og flest þeirra lönduðu í Hirtshals. Með konsúlsembættinu urðu samskipti Niels við Íslendingana enn fjölbreyttari en þau höfðu áður verið. Til dæmis þurfti hann að sjá um utankjörfundaatkvæðagreiðslu í tvennum kosningum árið eftir að hann tók við embættinu, en þá var bæði kosið til alþingis og sveitarstjórna. Annars voru störf íslenska konsúlsins í Hirtshals afar fjölbreytt og kom hann til dæmis að málum ef íslensku sjómennirnir veiktust, þegar upp komu lögreglumál eða þegar útvega þurfti varahluti í skipin. Skrifstofa Niels Jensen & Co við höfnina í Hirtshals var einskonar félagsheimili Íslendinganna sem þar voru enda voru þar bæði danski og íslenski fáninn ávallt við hún. Að loknu uppboði hvers dags söfnuðust skipstjórar síldarbátanna þar saman og ræddu málin og þangað leituðu oft eiginkonur og unnustur síldarsjómannanna, en þær dvöldu oft í Hirtshals og nágrenni yfir síldveiðitímann. Það var margt skrafað á skrifstofunni hjá Niels og þar var einnig unnt að fá að skoða íslensku blöðin.
Niels Jensen kom oft til Íslands og fór þá um landið og heimsótti gamla vini frá síldveiðitímanum í Norðursjónum. Þá voru ávallt fagnaðarfundir og rifjaðar upp gamlar sögur frá Norðursjávarárunum. Niels var hvers manns hugljúfi og afar vinsæll á meðal íslensku sjómannanna enda þekktur fyrir að hafa brugðist vel við öllum erindum þeirra á Norðursjávarárunum.
Árið 1973 stofnaði Niels útgerðarfélag ásamt nokkrum löndum sínum og Árna Gíslasyni skipstjóra. Félagið festi kaup á skipi sem var í smíðum í Noregi og fékk það nafnið Isafold. Isafold var stórt og burðarmikið uppsjávarskip ætlað til nóta- og togveiða, en á þessum tíma veiddu Danir helst síld og aðrar uppsjávartegundir í flotvörpu á litla báta sem gjarnan voru 20-30 tonn að stærð. Isafold hóf veiðar árið 1975 og var Árni Gíslason skipstjóri. Útgerðin gekk vel og að fjórum árum liðnum ákváðu Niels og félagar að stofna annað hlutafélag og láta smíða skip sem var enn glæsilegra en Isafold. Skipið var smíðað í Danmörku, fékk nafnið Geysir og var Árni Gíslason fyrsti skipstjóri á því. Hér verður saga útgerðar Niels Jensen og samstarfsmanna ekki frekar rakin en frá árinu 2006 hafa þeir gert út uppsjávarskipið Isafold sem er bæði stórt og glæsilegt og var smíðað árið 2006. Niels starfaði við útgerðina þar til á síðasta ári en þá eftirlét hann dóttur sinni og tengdasyni að stýra fyrirtækinu.
Uppsjávarskipið Isafold að veiðum í Norðursjónum. Niels saknaði Íslendinganna mikið þegar íslenska síldveiðitímabilinu í Norðursjó lauk árið 1976 og hann saknaði einnig áhrifa þeirra í Hirtshals. Í nýlegu viðtali sagði Niels að Hirtshals hefði misst mikið þegar veiðum Íslendinganna í Norðursjónum lauk enda hefðu þeir átt sinn þátt í því að gera bæinn að mesta síldarbæ Evrópu á sínum tíma.
Það er ljóst að margir Íslendingar eiga ljúfar minningar af samskiptum við Niels Jensen og þegar síldarævintýrið í Norðursjó kemur til umræðu ber nafn hans ávallt á góma. Þorsteinn Már Baldvinsson, stjórnarformaður Síldarvinnslunnar, segir til dæmis að þáttur Niels í síldarævintýri Íslendinga í Norðursjónum verði seint ofmetinn. Minnir hann á að á síldveiðitímabilinu í Norðursjó hafi 500-700 íslenskir sjómenn komið reglulega til Hirtshals á tímabilinu maí til desember ár hvert og það hafi verið mikið verk að sinna öllum erindum þeirra. Konsúlsstörf Niels í Hirtshals voru vel metin og árið 1997 var hann sæmdur hinni íslensku fálkaorðu fyrir störf sín.
Niels Jensen lætur eftir sig þrjú uppkomin börn og eina stjúpdóttur. Eftirlifandi eiginkona hans er Susanne Fibiger sagnfræðingur. heimasiða Svn.is
Skrifað af Þorgeir 25.08.2019 09:51Snurvoðartúr Hafborg EA í SkagafirðiÞað var lif og fjör á Skagfirðinum sl sunnudag þegar ég skrapp i veiðiferð með skipverjum á Hafborgu EA 152 frá Grimsey en báturinn hefur verið á dragnóta veiðum úti fyrir norðurlandi og aflað vel að sögn Guðlaugs Óla skipstjóra og eiganda i þessari veiðiferð var uppistaðan góð ýsa en þó talavert af þorski sem að var blandaður og var aflinn eftir daginn um 10 tonn sem að telst vera viðunandi hérna koma nokkrar myndir úr veiðiferðinni
Skrifað af Þorgeir 24.08.2019 17:04Bergey Ve dregin I landBilun i vélarrúmi Bergeyjar Ve 544 þegar skipið var á veiðum úti fyrir suðurströnd islands togbátturinn Drangavik Ve dró Bergey áleiðis til Vestmanneyja þar sem að lóðsinn tók við henni og kom innað bryggju við slippinn orsök bilunarinnar er talnin bilun i Dexeli sem að var skift um i gærkveldi og nótt og er talið að hún komist vonandi á veiðar á morgun Frettaritari siðunnar Óskar Pétur Friðriksson var á Vaktinni og tók meðfylgjandi myndir
Skrifað af Þorgeir 23.08.2019 23:34Úr Bótinni i morgun
Skrifað af Þorgeir 23.08.2019 23:27Varðskipið Týr i Flotkvinni
Skrifað af Þorgeir 23.08.2019 13:20Fin makrilveiði i smugunni
Skrifað af Þorgeir 23.08.2019 11:36Sleipnir Ve 83 I pottinnSnenmma i morgun lagði Sleipnir ve 83 i sýna hinnstu för i pottinn alræmda og mun ferðinni vera haldið til Belgiu en þar hafa nokkur islenskt skip endað sinn liftima Skipið hefur borið nokkur nöfn Sleipnir Ve ,Glófaxi Ve, Arnþór EA , Bergur VE Hilmir KE, Bjarni Ásmundar ÞH,Hilmir KE ,OG krossanes SU. sem að er fyrsta nafnið hans Óskar Pétur Friðriksson sendi mér nokkrar myndir sem að koma hérna
Skrifað af Þorgeir 23.08.2019 07:40Þór dregur fiskibát í landSkipstjóri á fiskibáti með bilaða stýrisvél á Húnaflóa hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar snemma í morgun og óskaði eftir aðstoð. Varðskipið Þór var þá í næsta nágrenni og voru hæg heimatökin að draga fiskibátinn í land, að því er segir á Facebook-síðu Gæslunnar. Varðskipsmenn brugðust hratt við og laust fyrir klukkan sjö í morgun var búið að koma línu fyrir á milli skipanna. Þór siglir nú áleiðis til Skagastrandar með fiskibátinn í togi en þangað er gert ráð fyrir að þau verði komin um hádegi.
Skrifað af Þorgeir |
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning: HörgárbyggðUm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 2546 Gestir í dag: 60 Flettingar í gær: 1455 Gestir í gær: 74 Samtals flettingar: 993967 Samtals gestir: 48567 Tölur uppfærðar: 21.11.2024 13:25:36 |
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is