Færslur: 2019 Desember

06.12.2019 21:22

Antargtic Endurance

                     Antargtic Endurance mynd Robin Kolbensen 2019

             Antargtic Endurance  Mynd Ultrabarqueros 2019

Þetta skip mun vera smiðað i Noregi á þesssu ári 2019 og að ég held gert 

út til að fiska Ljósátu kanski kemur einhver sem að veit meira um þetta 

Óskar Franz ég treysti á þig i þessu máli 

MO:  9827891

MMSI:  257400000

Call Sign:  LEZY

Flag:  Norway [NO]

AIS Vessel Type:  Fishing

Gross Tonnage:  12776

Deadweight:  6300 t

Length Overall x Breadth Extreme:  129.6m × 23m

Year Built:  2019

Status:  Active


 

06.12.2019 15:05

Gott ufsaskot hjá Bergey Ve 444

Að undanförnu hafa togarar ekki fiskað neitt sérstaklega vel á miðunum við landið en annað slagið hafa þó komið ágæt skot. Smáey VE gerði það gott í byrjun vikunnar en þá fékk skipið fullfermi af karfa og ufsa á skömmum tíma. Heimasíðan hafði samband við Ragnar Waage skipstjóra á Smáey til að fá nánari fréttir um umrædda veiðiferð. „Við létum úr höfn í Vestmannaeyjum klukkan 4.45 á sunnudagsmorgun og komum til hafnar klukkan 8 á mánudagskvöld með fullfermi eða 70 tonn af karfa og ufsa. Aflinn fékkst í Reynisdýpinu eða suður af Hjörleifshöfða en þangað er um fjögurra tíma stím frá Eyjum. Þarna fékkst mest ufsi yfir nóttina en karfi yfir daginn og það fiskaðist býsna vel. Það hefur ekki verið neitt sérstakt fiskirí úti fyrir suðurströndinni að undanförnu en af og til gengur þetta vel. Við fórum aftur út klukkan 10 á mánudagskvöld og vorum þá í djúpkarfa á Sneiðinni sunnan við Eyjar. Þar var öllu rólegra og við lönduðum um 25 tonnum á miðvikudagskvöldið,“ segir Ragnar.

             2444 Smáey Ve 444 mynd þorgeir Baldursson 2019

 

Það er áhöfnin á Bergey VE sem rær á Smáey um þessar mundir en hin nýja Bergey er á Akureyri þar sem verið er að ganga frá millidekki skipsins.

Gert er ráð fyrir að Bergey haldi til veiða fljótlega eftir áramótin. 

     Bergey Ve 144 við Slippkantinn á Akureyri mynd þorgeir Baldursson 2019

                 

04.12.2019 22:43

Eskey ÓF 80 kemur úr róðri

             2905 Eskey ÓF 80 á Siglufirði Mynd þorgeir Baldursson 2019

           2905 Eskey ÓF80 mynd þorgeir Baldursson nóv 2019
 

04.12.2019 22:41

Geirfugl GK 66

        2500 Geirfugl Gk 66 á Siglufirði mynd þorgeir Baldursson 2019

04.12.2019 06:07

Aðalsteinn Jónsson Su 11 með kolmunna til Eskju

Uppsjávarveiðiskip Eskju Aðalsteinn Jónsson SU 11 er væntanlegur til heimahafnar 

á Eskifirði i nótt með um 2200 tonn að kolmunna úr færeysku lögsögunni 

þar sem nokkur islensk skip er á veiðum og hafa aflabrögð verði viðunandi 

að sögn skipstjórnarmanna 

     2900 Aðalsteinn Jónsson SU 11 mynd þorgeir Baldurssson 2019

         2900 Aðalsteinn Jónsson Su 11 mynd þorgeir Baldursson 2019

 

03.12.2019 16:52

kolmunnaveiði i Færeysku lögsögunni

Mjög Góð Kolmunnaveði hefur verið  við Færeyjar siðustu daga og hafa skip Eskju 

Jón kjartansson og Aðalsteinn Jónsson Su verið að gera fina túra 

Jón Kjartans landaði i gær um 2200 tonnum og von er á Aðalsteini Jónssyni SU 

til löndunnar á morgun eða hinn með svipaðan túr 

     2949 Jón Kjartansson SU 111 mynd þorgeir Baldursson nóv 2019

          Grétar Rögnvarsson skipst mynd þorgeir Baldursson  2108

03.12.2019 09:20

Sigurður og Heimaey i Eyjum

Nú fyrir skömmu kom Sigurður Ve 15 með Heimaey Ve 1 til hafnar i Eyjum 

eftir að vélarbilun hafði orðið i Heimaey og dró Sigurður hana til heimahafnar 

mynd óskar Pétur Friðriksson 2019

 

   2812 Heimaey  ve 1  og    2883 Sigurður Ve 15 mynd óskar Pétur Friðriksson 

02.12.2019 22:24

Landað á Siglufirði i nóvember

Þaðer oftast mikið lif og fjör þegar bátarnir streyma inn til löndunnar á Siglufirði 

og hafa verið allt uppi 5 stórir linubátar inni i einu og stundum togarar lika 

svo að nóg er að gera hjá starfmönnum fiskmarkaðarins sem að birja eldsnemma 

og hætta seint læt fylgja þessari frétt nokkrar drónamyndir sem að ég tók 

fyrir skömmu Fv 972 Kristin Gk 457  2158 Tjaldur SH 270 og 2262 Sóley Sigurjóns GK 200

 

              Bátar við bryggju á Sigló Mynd þorgeir Baldursson nóv 2109

                     Landað á Sigló Mynd þorgeir Baldursson 2109

                      landað á Sigló mynd þorgeir Baldursson 2019

                  2262 Sóley Sigurjóns GK 200 mynd þorgeir Baldursson 

             2158 Tjaldur SH 270 mynd þorgeir Baldursson 2019

          Athafnasvæði Fiskmarkaðins og bátarnir i löndun mynd Þorgeir 2019

02.12.2019 07:55

Strembið að eiga við þorskinn

                2890 Akurey AK 10 mynd þorgeir Baldursson 2019

Þorskur hvarf með síldinni og lítið verður vart við loðnu í fiski.

 

„Heilt yfir má segja að aflabrögðin hafi verið alveg þokkaleg. Því er þó ekki að neita að það hefur verið strembið að eiga við þorskinn. Það hafa komið sæmilegustu skot inn á milli en sú veiði heftur jafnan staðið stutt. Á milli þess er um að gera að leita sem víðast,“ segir Eiríkur Jónsson, skipstjóri á ísfisktogaranum Akurey AK, í frétt á heimasíðu Brims.

Er heimasíða Brims ræddi við Eirík var Akurey að taka fyrsta hol veiðiferðarinnar í kantinum út af Vestfjörðum. Skipið fór frá Reykjavík á fimmtudagskvöld eftir um 130 tonna veiðiferð á Vestfjarðamið. Að sögn Eiríks verður þráðurinn tekinn upp að nýju og markmiðið nú líkt og þá væru fyrst og fremst þorskveiðar.

„Ég var í fríi í síðasta túr en þá var farið allt austur á Strandagrunn. Í lokin var svo endað á karfaveiðum í Víkurálnum. Við erum nú komnir í kantinn og veiðin virðist ekki vera neitt sérstök. Samkvæmt nýjustu fréttum eru menn að fá um tonn af þorski á togtímann hér fyrir norðan okkur og á Halanum þannig að það er ekki hægt að segja að mikill kraftur sé í veiðinni.“

Að sögn Eiríks fara fáar sögur af ufsaveiðum nú um stundir.

„Það kom skot í veiðina bæði á Sléttugrunni og Sporðagrunni á dögunum en veiðin stóð stutt á báðum stöðum. Mér skilst að veiðin sé frekar dauf fyrir austan en þar hafa menn verið að fá ufsa og ýsu í bland. Það tók fyrir alla þorskveiði þar um leið og síldin hvarf af miðunum. Hér á Vestfjarðamiðum höfum við ekki orðið varir við loðnu utan hvað loðna var í einhverjum fiski í síðasta túr. Magnið var þó ekki mikið,“ segir Eiríkur en hann segir það ekki vera spurningu um hvort, heldur hvenær þorskurinn muni skila sér af krafti inn í veiðina.

 

 

               

01.12.2019 22:27

Dalarafn Ve 508

Hérna kemur Skemmtileg myndasyrpa af Dalarafni Ve 508

sem að frettaritari siðunnar óskar Pétur  Friðriksson tók af honum 

þegar hann var að koma inn til Vestmannaeyja fyrir skömmu 

eins og sjá var bræluskitur á landleiðinni og talsverður sjór 

en látum myndirnar tala 

         2758 Dala Rafn Ve 508 Myndir óskar Pétur Friðriksson nóv 2019

                     Dala Rafn Ve Mynd Óskar Pétur Friðriksson 2019

                    Dala Rafn Ve Mynd óskar Pétur Friðriksson 2019

                        2758 Dala Rafn Mynd Óskar Pétur Friðriksson 2019

        Dalar Rafn Ve 508 á leið inn i rennuna mynd Óskar Pétur Friðriksson 

      2758 DalaRafn VE 508 við Heimaklett mynd Óskar Pétur Friðriksson 2019
 

01.12.2019 21:15

Kaldbakur EA 1

                    2891  Kaldbakur EA 1 Mynd þorgeir Baldurssson nóv 2019

Kaldbakur EA fór í sína fyrstu veiðiferð snemma í september mánuði að aflokinni uppsetningu á nýjum og fullkomnum vinnslubúnaði frá Slippnum Akureyri. 
Búnaðurinn í vinnslunni hefur reynst vel að sögn Angantýs Arnars, annars tveggja skipstjóra á Kaldbaki EA.

“Við erum mjög ánægðir með nýja vinnsludekkið, gæði aflans eru mikil og vinnslan gengur hratt og örugglega fyrir sig. Sniglakörin koma vel út, bæði hvað varðar blóðgun og kælingu og engir hnökrar hafa verið á lestarkerfinu, það er mikill munur að geta karað fiskinn upp á vinnsludekkinu.
Þau litlu vandamál sem hafa komið upp höfum við leyst í sameiningu með Slippnum og hefur eftirfylgni þeirra með búnaðinum verið til fyrirmyndar” segir Angantýr Arnar.

Ólafur Ormsson sviðsstjóri hjá Slippnum segir það afar ánægjulegt að Kalbakur fari vel af stað.

“Við hönnun á vinnsludekkinu var lögð áhersla á að gera alla vinnsluna um borð hagkvæma, auðvelda í þrifum og þannig tryggja framúrskarandi aflameðferð. 
Áreiðanleiki alls búnaðarins skiptir einnig gríðarlegu máli og er vandlega gætt að honum. Samstarfið með Samherja í þessu verkefni hefur gengið mjög vel og er ánægjulegt að sjá hversu vel vinnsludekkið hefur verið að reynast ” segir Ólafur.

01.12.2019 14:50

Óli á Stað GK 99

               2842 Óli á stað GK 99 Mynd þorgeir Baldursson 2019

01.12.2019 10:12

Ásdis ÓF 9

              2596 Ásdis ÓF 9  á Siglufirði mynd þorgeir Baldursson nóv 2019

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 96
Gestir í dag: 12
Flettingar í gær: 1506
Gestir í gær: 141
Samtals flettingar: 605806
Samtals gestir: 25589
Tölur uppfærðar: 26.4.2024 04:15:58
www.mbl.is