Færslur: 2021 Júlí31.07.2021 10:19Viking Jupiter og Gjögrarnir i Eyjafirði
Skrifað af Þorgeir 31.07.2021 10:11Makrilveiðar að glæðastMikið leitað í Smugunni og loksins einhver árangur30/7/2021 | Fréttir Heimasíðan ræddi í morgun við Þorkel Pétursson skipstjóra á Bjarna Ólafssyni AK og spurði hann hvað væri að frétta af makrílskipunum í Smugunni. „Við erum hressari núna en við höfum verið síðustu daga. Við erum loksins komnir í fisk og við og Beitir erum búnir að taka eitt hol. Hvort skip fékk 100 tonn og er aflanum dælt um borð hjá okkur. Þetta er dálítið síldarblandað, ég hugsa að um 30% af aflanum sé síld. Á móti kemur að makríllinn sem fæst hér er 470-480 gramma fiskur, mun stærri en við höfum verið að fá að undanförnu. Þegar við köstuðum vorum við búnir að leita í þrjá sólarhringa ásamt fleiri skipum með hverfandi árangri. Þetta var því mikið reiðileysi og menn eru ósköp fegnir að vera búnir að finna eitthvað. Við erum núna um 460 mílur frá Neskaupstað þannig að þetta er býsna norðarlega. Ef við hefðum ekki fundið þetta hefðum við farið enn norðar, en vonandi gerist þess ekki þörf. Auðvitað er svekkjandi að upplifa trega veiði en hafa ber í huga að í fyrra hófst ekki almennileg veiði í Smugunni fyrr en um mánaðamótin júlí- ágúst,“ segir Þorkell. Skrifað af Þorgeir 30.07.2021 07:47Norska Hafrannsóknarskipið G.O.Sars væntanlegt til Reykjavikur i dag
Skrifað af Þorgeir 29.07.2021 17:4973% strandveiðiafla verið landað
Farið er að síga á seinni hluta strandveiða þessa árs. Þokkalegur gangur hefur verið á veiðunum til þessa. Alls hefur 661 bátur landað afla á strandveiðum í ár. Þó sótti 681 bátur um leyfi til strandveiða og greiddi fyrir. Að sögn Önnu Guðrúnar Árnadóttur, sérfræðings hjá Fiskistofu, hafa síðan 25 bátar þegar skráð sig af strandveiðum. Fyrir afskráningu geta legið ýmsar ástæður, svo sem að báturinn ætli sér á makrílveiðar eða hafi óttast að veiðiheimildir til strandveiða myndu klárast eftir skamma stund þar sem frestur til að afskrá bát rann út á sama tíma og tilkynnt var um auknar aflaheimildir til strandveiða. Önnur ástæða getur verið að bátar með aflamark snúi sér að því að uppfylla veiðiskyldu sína fyrir fiskveiðiáramótin í ágústlok. Jöfn dreifing á milli mánaðaHeildaraflaheimildir í strandveiðum eru, eftir aukningu þann 20. júlí, 12.271 tonn af botnfiski, þar af 11.171 tonn af þorski. Af heildaraflanum hefur 8.742.035 tonnum af kvótabærum botnfiski verið landað, þar af 8.071.277 tonnum af þorski og 611.330 tonnum af ufsa. Alls hefur því rúmum 73 prósentum af heildaraflaheimildum strandveiðanna verið landað. Færa má rök fyrir því að dreifing á afla hafi því verið nokkuð jöfn, þar sem tæplega þrír fjórðungshlutar heimilda hafi verið veiddir þegar þriðji mánuðurinn af fjórum er að klárast. Aflinn dreifist sömuleiðis nokkuð jafnt á milli mánaða en í maí, júní og júlí hefur 2.700-3.000 tonnum verið landað. Svipuð staða var uppi á sama tíma í fyrra þegar 720 tonnum af botnfiski hafði verið bætt við heimildir og voru í heildina 10.720 tonn af þorski. Þá höfðu 663 bátar landað inn á strandveiðikerfið og 81,6 prósentum af heildarafla verið landað. Heimild 200 milur mbl.is Skrifað af Þorgeir 29.07.2021 07:47Sviptur veiðileyfi vegna framhjálöndunar
Fiskistofa hefur svipt Valþór GK 123 leyfi til veiða í atvinnuskyni í fjórar vikur vegna framhjálöndunar. Veiðileyfissviptingin gildir frá og með 24. ágúst til og með 20. september, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá stofnuninni. Þetta er í annað sinn á þessu sumri að skipið er svipt veiðileyfi vegna framhjálöndunar. Í ákvörðuninni kemur fram að við löndun úr skipinu þann 28. apríl 2021 hafi hafnarstarfsmaður orðið þess var að 572 kg. af þorski voru flutt af löndunarstað án þess að aflinn hafi verið veginn á hafnarvog. Ákvörðunin byggir á því að með þessu hafi verið brotið gegn 1. mgr. 6. gr. laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, en þar er mælt fyrir að allur afli fiskiskips skuli veginn á hafnarvog þegar við löndun og 1. mgr. 10. gr. sömu laga þar sem mælt er fyrir um að ekið skuli með landaðan afla rakleitt á hafnarvog. Viðurlög í málinu voru ákveðin með hliðsjón af ítrekunaráhrifum fyrri sviptingar á leyfi skipsins til veiða í atvinnuskyni vegna sambærilegs brots. Skipið var einnig svipt leyfi til veiða í fjórar vikur fyrr í sumar vegna sambærilegs brots. Ítrekunaráhrifa vegna þeirrar sviptingar gætti ekki við ákvörðun viðurlaga í þessu máli þar sem ekki var komin ákvörðun um sviptingu á leyfi skipsins áður en hin ólögmæta háttsemi fór fram sem framangreind svipting tekur til. Skrifað af Þorgeir 28.07.2021 14:51Fleiri selir en í fyrri talningu
Niðurstöður selatalningarinnar miklu, sem fór fram á Vatnsnesi um helgina, benda til að stofninn sé frekar að stækka en minnka. Framkvæmdastjóri Selasetursins telur líklegt að það sé selveiðibanni að þakka.
Fleiri selir en við síðustu talninguTalningin var gerð á rúmlega 100 km svæði á Vatnsnesi og Heggstaðanesi. Öll fjaran var gengin, selir taldir og skráðir. Páll L. Sigurðsson, framkvæmdastjóri Selasetursins á Hvammstanga, segir að talningin hafi komið vel út. „Við töldum 718 seli sem er talsvert betra en í þrjú síðustu skipti. Síðast þegar við töldum, 2016, fengum við 580 seli. Þannig að við erum alveg mjög kát yfir því að í stofninum skuli ekki vera að fækka heldur í það minnsta standi hann í stað,“ segir Páll. Selveiðibannið að virkaSelir hafa verið taldir á Vatnsnesi frá 2007 og hefur meðaltalið verið 757 dýr. Nú er fjöldi sela því nærri þessu meðaltali. Páll telur þessar tölur gefi vísbendingar um að selveiðibann sem var sett á fyrir um tveimur árum beri árangur. „Það að menn voru ekki að drepa seli við ósa þar sem laxar voru. Mikilvægar upplýsingar til framtíðarPáll segir að upplýsingarnar séu mikilvægar fyrir selarannsóknir næstu áratugina. Stefnt sé að selatalningu á næsta ári og að talningin verði árlegur viðburður. Sjálfboðaliðar víða að töldu selina og voru það jafnt Íslendingar sem útlendingar. Páll gleðst mjög yfir þeim mikla áhuga sem fólk sýndi verkefninu, bæði ferðamenn og fjölmiðlar. „Það var mjög góð þátttaka, í allt voru þetta 58 og það voru 55 sem gengu eða örkuðu Vatnsnes og Heggstaðanes. Þannig að við erum mjög ánægð og þakklát fyrir þennan hóp sjálfboðaliða,“ segir Páll að lokum. Skrifað af Þorgeir 27.07.2021 21:31Stefnir is 28 á útleið frá Isafirði
Skrifað af Þorgeir 27.07.2021 07:42Garðar BA 64 Grotnar niður i Skápadal
60. Garðar BA 64. 1921. Seldur til A/S Sandefjord Hvalfangerselskap (Peder Bogen), Sandefjord. Samantekt Jón Steinar Sæmundsson Af vefsiðu Bátar og bryggjubrölt Skrifað af Þorgeir 27.07.2021 06:55DÖNSK TÆKNI VERÐUR ÁBERANDI Á ÍSLENSKU SJÁVARÚTVEGSSÝNINGUNNI
Danish Export-Fish Tech (sem er hluti af Danska útflutningssambandinu) mun kynna stóran hóp danskra fyrirtækja á Íslensku sjávarútvegssýningunni 2021. „Danish Export-Fish Tech er staðurinn þar sem þið fáið aðgang að meira en 100 dönskum birgjum sem útvega búnað, lausnir, tækni, kunnáttu og ráðgjöf. Danish Export-Fish Tech skipuleggur Danska sýningarskálann á Íslensku sjávarútvegssýningunni 2021, þar sem dönsku þátttakendurnir sýna dæmi um sérþekkingu sína, gæði og nýsköpun í búnaði, lausnum og tækni fyrir fiskveiðar, fiskeldi og vinnslu fisks og sjávarafurða. Margra ára reynsla hefur fært dönskum birgjum mikla þekkingu og sérfræðikunnáttu varðandi þarfir og kröfur bæði í fiskveiðum og fiskeldi, sem hefur leitt af sér hugmyndaríkar, sjálfbærar, endingargóðar og fjárhagslega hagkvæmar lausnir fyrir greinina. Aukin áhersla Íslensku sjávarútvegssýningarinnar 2021 á fiskeldi hefur opnað á breiðari hóp danskra birgja,“ segir í frétt frá sýningunni. „Það veitir okkur mikla ánægju að koma með hóp sérfræðinga á Íslensku sjávarútvegssýninguna nú í ár, bæði úr veiðum, eldi og vinnslu til þess að taka þátt í samræðum við íslenska og alþjóðlega aðila sem hafa hagsmuna að gæta og koma að ákvörðunartöku þar rætt yrði um tækifæri og áskoranir í greininni á Íslandi og í Norður-Atlantshafi,” segir Martin Winkel Lilleøre, yfirmaður Danish Export-Fish Tech. „Ef þú setur þig í sambandi við einn af dönsku birgjunum í sýningarskála Danmerkur færðu bæði góða þjónustu og gæðavörur og lausnir.” www.audlindin.is Skrifað af Þorgeir 27.07.2021 06:38Börkur Nk og Bræðslan
Skrifað af Þorgeir 25.07.2021 08:49Hrafn Sveinbjarnarsson GK 255Það var létt yfir Strákunum á Hrafni Sveinbjarnarsyni GK 255 þegar við á Ljósafellinu SU komum til þeirra i siðustu viku með varahluti i Baader vélar og þá voru meðfylgjandi myndir teknar
Skrifað af Þorgeir 23.07.2021 23:05Gullver Ns 12 nýtt útlitNú seinnipartinn i kvöld hélt isfisktogarinn Gullver NS 12 áleiðis til heimahafnar á Seyðisfirði eftir gagnlegar breytinga i slippnum á Akureyri þar sem að meðan annas var skipið heilmálað i litum Sildarvinnslunnar i Neskaupstað en Gullver Ns hefur alltaf siðan það var smiðan verið Orange litað og hvitt að ofan en er nú blátt og kremgult sem að fer skipinu afar vel meðfylgjaand myndir voru teknar i kvöld á Akureyri og við Hjalteyri
Skrifað af Þorgeir 20.07.2021 18:43Breytingar á skipastól SíldarvinnslunnarBreytingar á skipastól Síldarvinnslunnar20/7/2021 | Fréttir Bergur ehf. í Vestmannaeyjum hefur samþykkt sölu á Berg VE 44 til Vísis í Grindavík. Skipið verður afhent nýjum eigendum í ágúst á þessu ári. Bergur er með tæplega 1600 þorskígildi, en skipið er selt án aflaheimilda. Bergur ehf. mun í kjölfarið kaupa Bergey VE 144 af móðurfélagi sínu Bergi Hugin ehf. Er um að ræða hagræðingaraðgerðir til að auka nýtingu skipa félagsins. Þess skal getið að skerðingar Síldarvinnslusamstæðunnar námu um 1500 tonnum í bolfiski fyrir komandi fiskveiðiár. Dótturfélag Síldarvinnslunnar, Runólfur Hallfreðsson ehf., hefur einnig gengið frá sölu á uppsjávarskipinu Bjarna Ólafssyni AK 70 til erlendra aðila. Salan er þó háð ákveðnum fyrirvörum af hálfu kaupenda sem munu skýrast innan mánaðar. Ef af verður mun skipið verða afhent nýjum eigendum á haustmánuðum. Eins og kunnugt er tók Síldarvinnslan á móti nýju skipi í júníbyrjun sem fékk nafnið Börkur. Í kjölfarið mun eldri Börkur fá nafnið Bjarni Ólafsson AK 70 og munu áhöfn og aflaheimildir þá flytjast á milli. Bergur VE-44. Ljósm: Þorgeir Baldursson
Skrifað af Þorgeir 19.07.2021 22:27Það Gefur á Bátinn
Skrifað af Þorgeir 19.07.2021 21:50Góð samvinna í Barentshafinu
Góður afli og blíða í Barentshafinu þar sem þrjú íslensk skip hafa verið að veiðum að undanförnu.
„Aflinn var góður og svo vorum við svo heppnir að það var nánast einmuna blíða allan tímann. Það var logn og þegar best lét fór hitinn í meira en 30 gráður. Þetta er hins vegar gríðarlega löng sigling. Við vorum rétt tæpa fimm sólarhringa að sigla norður í Barentshaf og mér sýnist að heimferðin taki svipaðan tíma.” Þetta segir Eyþór Atli Scott, skipstjóri á frystitogaranum Vigra RE, er heimasíða Brims náði tali af honum en Vigri var á leiðinni til Reykjavíkur. Eftir Vigra var frystitogarinn Örfirisey RE en bæði skipin, sem Brim gerir út, hafa að undanförnu verið að veiðum í Barentshafi.
„Við vorum 30 daga á veiðum og vorum með alls 1.030 tonn upp úr sjó. Uppistaða aflans var þorskur en við vorum með nokkra tugi tonna af ýsu og hlýra. Afli Örfiriseyjar var meiri enda getur skipið dregið tvö troll samtímis.” Að sögn Eyþórs Atla hófust veiðar svo til á þeim punkti þar sem rússneski eftirlitsmaðurinn var tekinn um borð. „Við unnum okkur svo austur eftir og vorum lengst af á veiðum á Gæsabankanum. Við lukum veiðum svo á svokölluðum Kildenbanka,” segir Eyþór Atli. „Þorskurinn er af mun blandaðri stærð en við höfum átt að venjast og það er nokkuð ljóst að yngri árgangar eru að koma inn í veiðina.”
Að sögn Eyþórs Atla voru tvö önnur íslensk skip á slóðinni, Arnar HU og Blængur NK. Góð samvinna var á milli skipstjórnarmanna og segir Eyþór Atli slíka samvinnu skila mjög góðum árangri. „Það hefur mjög margt breyst frá því að maður byrjaði í Barentshafinu. Rússarnir eru farnir að gera út mjög stóra og öfluga togara og það eru fleiri en áður um hituna,” segir Eyþór Atli Scott.
Skrifað af Þorgeir
|
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning: HörgárbyggðUm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 261 Gestir í dag: 28 Flettingar í gær: 1455 Gestir í gær: 74 Samtals flettingar: 991682 Samtals gestir: 48535 Tölur uppfærðar: 21.11.2024 08:19:24 |
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is